Æskan - 01.12.1987, Page 3
Kœri lesandi!
Þegar við setjum saman þessi orð
finnst okkur svo stutt síðan við
sendum þér síðasta jólablað. Mikið er
nú tíminn fljótur að líða. Engu að
síður hefur margt gerst í lífi okkar á
einu ári.
Það er gott að jólahátíðin skuli
ganga í garð einmitt þegar dimmast er
hér á norðurslóðum. Sú helgi og
gleði, sem hvílir yfir jólunum, ýtir
myrkrinu til hliðar um stund, — og
við vitum líka að þá er sólin farin að
hcekka á lofti. Mannlífið tekur á sig
aðra mynd í desembermánuði þegar
hugur flestra er bundinn
jólaundirbúningi. Þið hafið
áreiðanlega œrinn starfa þessa dagana
og bíðið jólaleyfisins með óþreyju!
Þetta tölublað dregur vissulega dám
af jólunum. Séra Árni Bergur
Sigurbjörnsson ritar jólahugvekjuna
og minnist þess hvað hann sjálfur
hlakkaði mikið til jólanna þegar hann
var ungur drengur og gerir enn þó að
það sé með öðrum hætti. Skilningur
ykkar, sem enn þá eruð ung að árum,
á jólunum sem trúarhátíð á vonandi
eftir að aukast þegar fram líða stundir
— og þau verða betri með hverju ári
sem líður!
Opnuviðtalið í blaðinu er við
Guðmund Guðmundsson,
handknattleikskappa. Jólin verða
skammvinn hjá honum því að
landsliðið fer til keppni í Danmörku
á annan í jólum. Þetta er 10. utanferð
hans á árinu. Já, það þarf ýmsu að
fórna fyrir handknattleikinn.
— Fleira efni er i blaðinu sem við
vonum að þið njótið vel!
Við óskum þér, kæri lesandi, og
fjölskyldu þinni gleðilegrar
jólahátíðar og gæfuríks komandi árs.
Bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf
á árinu. Við hlökkum til að senda þér
nýtt blað á nýju ári.
Eddi og Kalli
ÆSKAN
9. tbl. 1987, 88. árg.
„Ég hamast viö aö hugsa fallega. Svo fá hugsanirnar vængi og veröa aö englum
sem passa alla í heiminum!" — sagði Magga litla við mömmu sína. — Sjá fönd-
uropnu
EFNISYFIRLIT
Vlðtöl og greinar
„Yður er í dag
frelsari fæddur.“
Jólahugvekja eftir sr. Árna
Berg Sigurbjörnsson 4
„Bogdan haföi enga
trú á mér.“
— Guðmundur Guðmundsson
í opnuviðtali 12
Barnaútvarpið — góðan dag
— rætt við stjórnendur
og „hjálparkokka" þeirra 36
Æskan í æskulýðsfélögum 58
Sögur
Aðfangadagur 6
Smalinn og huldufólkið 10
Ásta litla lipurtá 26
Hann vill að öllum líði vel 34
Jólasaga 35
Stefnumótið 44
Hvíti fuglinn 60
Hvíti riddarinn 70
Baldur í Skuggadal 74
Þættir
Okkar á milli 15
Aðdáendum svarað 16
Frímerki 18
Æskupósturinn 22
Tónlistarkynning 28
Poppþáttur 50
Ýmlslegt
Jólin koma (leikrit) 8
Jól — Ijóð eftir Sig. Júl. Jóh. 11
75 ára afmæli skátastarfs 21
Upp eftir jólatrénu — spil 40
Fermingarbarnablaðið
á Akranesi 46
Spurningaleikur 64
Forsíðumyndina tók Ragnar Axelsson
Skrifstofa er að Eiríksgötu 5, 3. h.
Sími ritstjóra er 10248; afgreiðslu
blaðsins 17336; á skrifstofu 17594
Áskriftargjald júlí-des. '87: 980 kr.
Gjaldd. 1. sept. Lausasala 295 kr.
Póstáritun: Æskan, pósthólf 523,
121 Reykjavík.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Eðvarð Ingólfsson, heimas. 641738
Karl Helgason, heimas. 76717
Útlit og umbrot:
Jóhannes Eiríksson
Filmuvinnsla: Offsetþjónustan hf.
Prentun og bókband: Oddi hf.
Útgefandi er Stórstúka Islands.
3