Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 23
Ástfangin
Kæra Æska.
Ég hef verið hrifin af strák í þrjú ár.
Hann er 14 ára en verður 15 í janúar á
næsta ári. í fyrstunni vorum við ofsa-
lega ástfangin en svo kom babb í bát-
inn og við hættum að vera saman. Við
byrjuðum aftur en hættum svo stuttu
seinna — og þannig hefur þetta geng-
ið. Eftir að síðast slitnaði upp úr sam-
bandi okkar hefur hann hvorki hringt
né talað við mig.
Ég er æðislega hrifin af þessum
strák. Hvað á ég að gera til að ná at-
hygli hans aftur?
sos.
Þú ert hrifin af strák og vilt vera á
föstu með honum en hann virðist lítinn
áhuga hafa því að hann lcetur ekkert
frá sér heyra. Af hverju á hann að tala
við þig að fyrra bragði? Hvað um þig?
Hví hefur þú ekki samband við hann og
rœðir málin fyrst þú ert enn hrifin af
honum? Vertu vinsamleg og rœddu við
hann í rólegheitum. Ef til vill getur þú
unnið traust hans aftur. Láttu hann
finna að þú getir hugsað þér að vera
áfram vinur hans og þér þyki enn vœnt
um hann. Eftil vill áttir þú sök á því að
þið hcettuð að vera saman síðast. Farðu
yfir þá atburði í huganum. Athugaðu
hvort þú hefur sœrt hann eitthvað og
það sé þá skýringin á því að hann hefur
ekki hringt eða talað við þig. Fáðu á
hreint hjá honum hvort hann hafi ein-
hvern áhuga á þér. Ef svo er ekki skaltu
reyna að gleyma honum sem fyrst. Það
eru nógir fiskár í sjónum! Gangi þér
vel!
Kveðja
Hæ, Æska.
Mér þætti mjög gott ef þú vildir
birta þetta:
Hæ, Jón, Dísa og allir hinir! Ég
hlakka til að sjá ykkur næsta sumar.
Ég bið að heilsa öllum, sérstaklega
Móra og Sigríði.
Með þökk fyrir birtingu.
Kisa í raunum
Kæra Æska.
Ég ákvað að senda þér stutta en
sanna frásögn. Hún hljóðar svona:
Einu sinni var kisa sem hét Dán-
dán. Hún var kolsvört og átti heima í
stóru timburhúsi með tveim kvistum.
Eitt sinn gleymdist að loka glugga í
kvistherberginu og litla kisa stökk út
um hann. Hún lenti á þakrennunni og
festist í henni. Aumingja kisa sat
þarna dauðskelfd og mjálmaði hátt.
Við systurnar, sem áttum kisu, urð-
um logandi hræddar og héldum að
hún myndi hrapa niður. En allt fór vel
að lokum því að pabbi okkar kom og
bjargaði henni. Éftir þetta kom kisa
aldrei nálægt glugganum.
Bréf úr Hrútafirði
Halló Æskupóstur.
Ég er úr Hrútafirði og mi| langar til
að lýsa félagslífi okkar. Ég geng í
Barnaskóla Staðarhrepps og mér líkar
vel í honum. Diskótek eru haldin
2-3svar á veturna og svo er alltaf farið
í skólaferðalag í lok skólaársins. í
fyrra fórum við t.d. í Húsafell. í apríl
er alltaf haldin hlutavelta og ágóðinn
látinn renna í ferðasjóð. Hér er gefið
út skólablað sem heitir Pennarugl.
Það hefur komið út í 11 ár. í mars fór-
um við í skíðaferðalag til Akureyrar.
Ekki gekk allt eins og við áttum von á
því að ferðin þangað tók 9 tíma.
Venjulega tekur hún 3-4 tíma. Við
festum okkur m.a. uppi á Öxnadals-
heiði.
í lokin ætla ég að birta lýsingu á
draumaprinsinum mínum. Hann er
dökkhærður með gráblá augu, frekar
hávaxinn og sætur. — Þökk fyrir birt-
inguna.
Sigga.
Lítið að frétta
Hæ, kæra Æska!
Ég á heima á Djúpavogi við Beru-
fjörð. Héðan er fátt að frétta því að
það gerist aldrei neitt. Ég skrifaði nú
aðallega til að kvarta yfir lítilræði.
í fyrra barst mér gíróseðill til inn-
heimtu á áskriftagjaldi Æskunnar 25
dögum eftir gjalddaga. Annars er ég
mjög ánægður með blaðið. Ég hef
verið áskrifandi í sjö ár.
Bless, bless,
Þorsteinn Erlingsson,
Gautavík,
765 Djúpavogi.
Þakka þér fyrir bréfið, Þorsteinn.
Það eru ekki margir lesendur sem
kvarta undan því að fá ekki reikninginn
fyrir blaðið á réttum tíma. Skýringin á
þessu er sú að útsending gíróseðla tafð-
ist í vor vegna forrita sem verið var að
búa til fyrir tölvuna. Þess vegna fékkstu
gíróseðilinn svona seint. En þú greiddir
áreiðanlega enga dráttarvexti! Vonandi
heldurðu áfram að vera ánœgður með
blaðið.
Sceunn Ósk Kjartansdóttir, 9 ára,
)
23