Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 8
VÖXTURINN OG
ÞYNGDIN
Kæri Magnús!
Ég er ein af þeim sem eiga í vand-
ræðum með vaxtarlagið og þyngdina. Ég
reyni að létta mig, drekk bara léttmjólk
eða undanrennu, læt ekki sykur út á
neitt og reyni að gæta vel að því hvað ég
borða og hve mikil fita er í því. En ég hef
einn galla: Ég er sælgætissjúk og æst í
sætabrauð. Ég hef reynt að hætta að
borða sælgæti en ég byrja alltaf aftur.
Viltu vera svo góður að svara mér!
Fituklessa.
Kæra vinkona!
Auðvitað er gott að vera vel á sig
kominn en maður verður að gæta þess
að borða ekki svo lítið að maður verði
vannærður, slappur og orkulaus. Lík-
amsrækt getur auðveldlega gengið út í
öfgar.
Maður veröur að bera virðingu fyrir
líkama sínum. Hann er sá eini sem
manni er látinn í té! Hugsaðu vel um
hann og kallaðu þig alls ekki fituklessu
...!
Það er gott að þú hjólar. Það eykur
bæði þol og vöðva. Þegar vöðvar
stækka, t.d. af mikilli hreyfingu, brennir
maður hitaeiningum (kaloríum). Þess
vegna er nauðsynlegt að hafa hreyfing-
una sem fjölbreyttasta.
En vandamál þitt er sykurát - eins og
þú segir sjálf. Þegar þú borðar sælgæti
eykur þú sykurinn í líkamanum um of.
Hann er skammtímaorka. Þegar þú
hættir að borða sykur tekur það lík-
amann eina til tvær vikur að jafna sig aft-
ur því að hann kallar á þessa orku.
Gott ráð: Borðaðu ávexti eða popp-
korn alltaf þegar þig langar í sælgæti.
Hafðu sneiðar af gulrótum, gúrku eða
káli í ísskápnum til að grípa í þegar þú
situr við sjónvarp eða ert að læra. Það er
þá sem maður hámar í sig!
Gangi þér vel og mundu: Engin fitu-
klessa...
ÞOLFIMITÍMAR
FYRIR UNGLINGA
Magnús!
Hvenær eru þolfimitímar hjá þér fyrir
þrettán ára unglinga?
Ég á við hvaða daga og klukkan
hvað.
Ég var að hugsa um að byrja í haust!
Til hamingju með góðan árangur!
Solla Bolla.
um orsök hans. En ég leitaði til læknis
og hann svaraði á þessa leið:
Hlaupastingur stafar af krampa í
þindinni. Hægt er að koma í veg fyrir
hann með því að nota þindaröndun,
anda inn í gegnum nefið og út um
munninn.
Þindaröndun má æfa með því að
liggja á bakinu með hendurnar á magan-
um, anda fyrst að sér í gegnum nefið (þá
á maginn að lyftast) og síðan frá sér út
um munninn (þá fer maginn aftur niður).
Þessa aðferð er sjálfsagt að nota
þegar skokkað er og hlaupið.
Best er að vera þá ekki nýbúinn að
borða og gæta skal þess að fara hægt af
stað.
Hægt er að verjast hlaupasting með
því að halda niðri í sér andanum og
spenna út magann.
Þakka ykkur fyrir bréfin,
kveðja,
Svar:
Þakka þér fyrir bréfið!
Það er gaman að heyra að þú ert að
hugsa um að byrja í þolfimi. Hér eru
nokkrar upplýsingar sem
koma vonandi að góðum
notum:
Við erum með þolfimi fyrir
unglinga í „Aerobic Sport"
að Faxafeni 12 í Reykjavík.
Þar erum við líka með sýn-
ingahóp sem er kallaður
Landsliðið. Allir sem vilja
geta verið með í honum.
Tímar eru á þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudög-
um kl. 15.45. Greiðsla fyrir
einn mánuð í senn er 2900
kr. en þriggja mánaða kort
kosta 6800 kr. Frekari upp-
lýsingar má fá á staðnum.
Nú er bara að drífa sig af
stað og koma í heimsókn.
Hjá okkur er frábært félags-
líf. Sjáumst!
Svar við bréfum frá
„Hlaupasting" og „Tveimur
úthaldslausum“:
Menn hafa ekki verið á
einu máli um hvernig best
væri að bregðast við
hlaupasting - og jafnvel ekki
8 Æ S K A N