Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 53
ÚTILÍFSNÁMSKEIÐ
Mörg undanfarin ár hafa skátafé-
lög í Reykjavík og nágrannabyggðum
haldið útilífsnámskeið fyrir börn og
unglinga á aldrinum 8-15 ára.
Hér á eftir fer frásögn ungs
drengs sem tók þátt í námskeiði hjá
Útilífsskóla skáta sem rekinn er af
skátafélaginu Skjöldungum.
Útilífsskólinn er einn sá elsti á
þessu sviði og hefur verið frumkvöð-
ull með ýmsa hluti. Má þar helst
nefna að fötluðum er gefinn kostur á
að taka fullan þátt í námskeiðunum
við hlið ófatlaðra.
En lítum nánar á frásögn drengs-
ins Simma:
„Mamma skráði mig á námskeið
hjá skátunum af því að afi hefur
alitaf verið starfandi skáti. Hann
þekkir Útilífsskólann og vildi að ég
færi þangað.
Á fyrsta degi var okkur skipt í
flokka. Þá fundum við nafn á flokk-
inn og útbjuggum fána, merki og
fleira. Við fengum líka útilífsskátaklút
sem við máttum eiga. Við fórum í
ýmsa skemmtilega skátaleiki og
kynntumst þannig. Það var mjög
gaman að kynnast öllum krökkunum
þó að sumir væru ekki eins leiknir og
aðrir.
Námskeiðið var í tíu daga. Sex
skátaforingjar voru með okkur allan
tímann auk þeirra sem bættust í
hópinn þegar farið var í útilegu í lok-
in. Maður lærði margt þarna. Við
gerðum hnútatöflu, byggðum
þrautabraut eins og er á skátamót-
um og lékum okkur í henni. Við fór-
um í gönguferð og borðuðum nestið
okkar uppi í Öskjuhlíð, fórum í heim-
sókn til Slysavarnafélags íslands og
á fleiri skemmtilega staði.
Það var farið í ratleiki og keppni
milli flokka. Allir fengu einhverja við-
urkenningu, ekki bara þeir sem
unnu.
„Þannig er það í skátunum,"
sögðu foringjarnir.
Svo var kennd skyndihjálp og
haldin alvöru skyndihjálparæfing
með sjúklingum sem gervisár voru
búin til á. Það þótti mér ofsalega
gaman enda ætla ég í hjálparsveit
eins og pabbi þegar ég verð stór.
í útilegunni fórum við í skátaskál-
ann, grilluðum og bökuðum
„hæk“brauð (ferðabrauð). Við héld-
um kvöldvöku og fengum skáta í
heimsókn. Það var rosalega gaman.
Við kunnum alla söngvana enda var
alltaf verið að kenna okkur nýja
skátasöngva.
Það var svo margt sem við gerð-
um í útilegunni og á námskeiðinu að
ég ætla einhvern tíma að skrifa bók
um allt saman. Mamma er búin að
segja að ég megi fara aftur næsta
sumar. Þá ætla ég að taka Jóa vin
minn með mér. Pabbi hans er jeppa-
maður en kann ekki pelastikk - en
það kann ég! Kannski hann ætti líka
að fara á námskeið svo að hann
gæti bjargað sér þegar hann festist í
snjó. Ég ætla ekki að segja meira frá
núna nema hvað það var afskaplega
skemmtilegt því að maður var alltaf
að læra eitthvað nýtt.
Bless,
Simmi.