Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 21
TEIKNIKEPPNI
ÆSKUNNAR
Dragið fram blýant, blöð og liti!
Setjist við borð með blað fyrir fram-
an ykkur, takið blýant í hönd, hafið
litina tiltæka, rekið tungubroddinn
örlítið út fyrir varirnar og byrjið að
teikna! Vandið ykkur vel því að til
mikils er að vinna í keppninni. Allir
þátttakendur fá viðurkenningarskjal
- og margir hljóta verðlaun: Teikniá-
höld, íþróttavörur og fleira. Þeim
verður nánar lýst í næsta tölublaði
Æskunnar.
HVAÐ Á AÐ TEIKNA?
af körfuknattleiks-snillingnum Mich-
ael Jordan á sínum tíma og efum
ekki að það sama verður uppi á ten-
ingnum núna.
REGLUR ...
Þið ráðið hvort þið sendið mynd
af Magnúsi og líka góðum vinum -
eða einungis öðru myndefninu.
Ekki má draga myndina í gegn-
um blað. Dómnefndin áttar sig strax
á hvort það hefur verið gert.
Magnús Scheving - og/eða
góða vini.
Keppnin er tvíþætt. Verðlaun
verða veitt fyrir hvort tveggja, mynd
af Evrópumeistaranum og „heims-
meistaranum okkar“ í þolfimi, Magn-
úsi Scheving - og góðum vinum.
Vinirnir geta verið tveir eða fleiri,
t.a.m. krakkar - eða dýr, eða krakki
og dýr, eða roskinn maður/kona og
barn/unglingur.
Flest ykkar hafa séð Magnús sýna
þolfimi-æfingar, annaðhvort í sjón-
varpi, á útihátíðum eða skemmtun-
um innanhúss. Flér í blaðinu eru líka
nokkrar myndir af honum! Þess
vegna eigið þið auðveldlega að geta
teiknað hann, kannski við þær æf-
ingar sem þið dáðust mest að.
Við fengum margar góðar myndir
Myndirnar verða metnar með tilliti
til aldurs teiknarans.
Fimmtán ára og yngri keppa um
verðlaunin - en viðurkenning verður
veitt í „hrukkudýraflokki", sextán ára
og eldri (tillaga lesanda).
Myndirnar skal senda fyrir 5. nóv-
ember nk. Munið að rita nafn ykk-
ar, heimilisfang, fæðingardag og
-ár á bakhlið blaðsins.
Merkið umslagið þannig:
Teiknikeppni Æskunnar,
pósthólf 523, 121 Reykjavík.
Æ S K A N 2 7