Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1994, Qupperneq 52

Æskan - 01.06.1994, Qupperneq 52
FIMM GEIMFERÐIR TIL MARS FYRIR NÆSTU ALDAMÓT Á næstu árum mun þekk- ing okkar á reikistjörnunni Mars aukast stórum. Ráð- gerðar eru a.m.k. fimm geim- ferðir til reikistjörnunnar á vegum Bandaríkjamanna og Rússa. í fjórum þessara ferða munu geimför lenda á yfir- borði hennar, framkvæma mælingar og senda myndir og aðrar upplýsingar til jarð- ar. Enn sem komið er hafa mönnuð för ekki verið send þangað og búast má við að bíða þurfi nokkra áratugi þar til slíkur leiðangur verður reyndur. Mars er talsvert minni en jörðin. Massinn er ekki nema 1/10 af massa jarðar og þvermálið tæpur helmingur. Þar er þunnur lofthjúpur, loft- þrýstingur er minni en einn hundraðasti af þrýstingi við yfirborð jarðar og hitastigið er á bilinu -100 stig á Selsíus til frostmarks. Ýmislegt bendir þó til að einhvern tíma hafi aðstæður á Mars verið viðkunnanlegri, jafnvel líf- vænlegar. Fyrsta geimfarið til að fljúga nærri reikistjörnunni var bandaríska geimfarið „Mariner 4“ - 1964. Það tók 22 myndir af yfirborðinu. Þær sýndu gíga eftir loftsteina og landslag ekki ósvipað tungl- inu - en enga skurði sem menn höfðu talið sig sjá í sjónaukum seint á síðustu öld. 1971 tók geimfarið „Mar- iner 9“ myndir af öllu yfir- borði Mars. Þá kom í Ijós stórbrotið landslag, stærstu eldfjöll sólkerfisins (Olympus Mons 27 km hátt), gljúfur (Valles Marineris 4000 km langt og allt að 500 km breitt) svo og uppþornaða árfar- vegi. 1976 lentu Víkingur fyrsti Skömmu eftir lendingu geimfarsins á Mars munu þrjár hliðarþess leggjast út. Á innra byrði þeirra eru Ijósrafhlöður sem knýja munu rannsóknartæki og boðsendingar til jarðar. Á myndinni sést einnig hinn svokallaði „Micro-Rover“ sem á að aka um í nágrenni farsins, taka myndir og greina efni. Undir geimfar- inu eru leifaraf uppblásnum púðum sem draga úr árekstrinum við yfirborðið. og annar á yfirborðinu, tóku myndir af umhverfi lending- arstaðarins, athuguðu veður og mældu ýmislegt. Einnig voru í þeim tilraunastofur sem áttu að leita að lífrænum sameindum í yfirborðssand- inum en fundu engin ótvíræð merki um líffræðilega virkni. í árslok 1995 munu Bandaríkjamenn senda geimfarið „Mars Rathfinder" til reikistjörnunnar og á það að lenda þar 4. júlí 1996. Um borð verður t.a.m. tækið „Magnet Array“ sem er röð missterkra segla sem segul- magnað ryk mun festast við. Þá eiga að fást upplýsingar um magn segulvirkra efna- sambanda í ryki lofthjúpsins - en þær geta skýrt þróun hjúpsins. (Úr grein í Morgunblaðinu 7. ágúst 1994: Hulunni svipt af yfirborði Mars - eftir Har- ald P. Gunnlaugsson. Mikið stytt. Höfundur leggur stund á doktorsnám í eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla - og tekur virkan þátt í að hanna tækið „Magnet Array“ sem nefnt er í greininni) „VÍTIN ERU TILAÐ VERJA ÞAU!“ - segir Haukur Braga- son markvörður knatt- spyrnuliðs Grindavíkur. Haukur varði þrjár víta- spyrnur í leik við Stjörnuna ( undanúrslitum bikar- keppni KSÍ - eina í fram- lengingu og tvær í víta- keppni. Hann átti öðrum fremur heiðurinn af því að Grindavík sigraði í leiknum. Hann tryggði liði sínu líka sigur gegn FH og ÍBV í sömu keppni, varði tvær spyrnur í vítakeppni gegn Hafnfirðingum og eina gegn Eyjamönnum. Grindavík er í annarri deild. 22 ár eru síðan lið úr deildinni lék til úrslita um bikarinn. Mótherjar þeirra verða KR-ingar. HEIMSMEISTARI í ÞREMUR GREINUM! Geir Sverrisson vann það afrek að sigra í þremur grein- um á heimsmeistaramóti fatlaðra sem haldið var í Berlín í sumar: 100, 200 og 400 m hlaupi. Hann keppti áður í sundi og vann glæsta sigra í því en sneri sér síðan að hlaupagreinum. Á Ólymp- íuleikum fatlaðra í Barselónu 1992 hlaut hann gullverðlaun í 100 m bringusundi og setti Ólympíumet, 1.19.48 mín. Þá varð hann þriðji í 100 metra hlaupi. Fyrr um sumarið hafði hann sett heimsmet í sömu sundgrein, 1.19.20 mín. Hann hefur verið valinn í landslið íslendinga í boð- hlaupum og keppt þá með ófötluðum. Geir svaraði aðdáendum sínum í 8. tbl. 1992. Geir Sverrisson varð heims- meistari í þremur hlaupagreinum í sumar. 1992 setti hann heimsmet í 100 m bringusundi! S 2 Æ S K A N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.