Skírnir - 01.01.1935, Blaðsíða 103
Skírnir]
Tækni og menning.
101
Skólar, bókasöfn, sjúkrahús, háskólar, söfn eru víða
rekin á kostnað ríkisins til ókeypis nota fyrir almenning,
sömuleiðis vegir, brýr, skipaskurðir, skemmtigarðar o.
fl. 1 sömu átt ganga ellitryggingar og atvinnuleysisstyrk-
ur. En um leið yrði að koma þegnskylduvinna, er svaraði
til þeirra gæða, er allir nytu í sama mæli. En þessi fram-
leiðsla fyrir þjóðarinnar reikning næði aðeins til þess,
sem hægt er að mæla og vega og lagsetja, eða reikna út,
hve mikið þyrfti af. Önnur framleiðsla yrði látin frjáls.
Mumford tekur það fram með feitu letri, að þessi sam-
eignarstefna sé ekki á grundvelli kenninga Marx’ og
feli ekki í sér viðurkenningu á þeirri harðstjórn og her-
valdi, ,er kommúnistaflokkar hallast venjulega að, né
heldur á aðferðum og stofnunum Rússa.
,, , Skapandi starf er eina mikilvæga verk-
Menntandi starf. „ . , . , . „„ ,, ,
efm mannkynsms, aðalrettlæting þess og
varanlegasti ávöxtur af dvöl þess á þessari jörð. Aðal-
verkefni alls heilbrigðs þjóðarbúskapar er að koma því
lagi á, að skapandi starf fái að njóta sín, að engri stétt
sé sakir annríkis eða menntunarskorts meinað að eiga
þátt í menningarlífi þjóðfélagsins, að svo miklu leyti
s.em hæfileikar leyfa. Ef vér gerum ekki menninguna
alþjóðareign, látum framleiðsluna þjóna uppeldinu, þá
stirðnar vélgengt framleiðslukerfi, hve fullkomið sem
er, og verður dautt form, sem reynt er að blása lífi í
weð „brauði og leikum".
Áhrif vinnunnar á verkamanninn eru eins merkileg
°g vinnan sjálf, og iðnaðurinn getur í heild sinni orðið
merkilegur skóli. Þegar vinnan verður miðuð við það
að fullnægja þörfunum, en ekki við fjárgróða einn, þá
verður farið að athuga, hvort rétt sé að nota heldur þá
aðferðina, sem ver fer með verkamanninn, en gefur
meiri afköst, eða hina, sem er seinvirkari, en hollari fyr-
ir verkamanninn. Óholl vinna verður takmörkuð sem
mest, en hin hollari studd, og þá lifnar yfir sveitunum á
ný. Vélarnar eiga að bægja á braut þrælavinnunni, en
ekki allri vinnu, því að vinnan, jafnt að stinga upp garð-