Skírnir - 01.01.1935, Blaðsíða 145
Skírnir]
Stofnun Fjölnis.
143
einungis orðið allt annað en það varð, heldur er alveg
óvíst, að úr því hefði yfirleitt orðið meira en boðsbréfið
eitt. Þeir Jónas og Konráð voru ekki meiri framkvæmda-
menn en svo, að þeir þurftu mann eins og Tómas til þess
að eggja sig og ýta á eftir sér.
Þeir félagarnir reyndu að sveigja til hver fyrir öðr-
um og semja sig hver eftir öðrum í lengstu lög. Jónas fær-
ist það í fang, að skrifa „nytsama“ grein „um hreppana
á lslandi“ í fyrsta árg. Fjölnis. Tómasi finnst þátturinn
„heldur fátæklegur“ (Bréf, 157), en virðir þó viðleitnina,
Hann þakkar þeim félögum sínum umbætur á máli á rit-
gerðum sínum, en er þó í aðra röndina óánægður með „að
fína svo orðatiltækin, að almenningur ekki skilji þau“. Þeir
Jónas og Konráð dást að eldmóði Tómasar, en þeim blöskr-
ar hroðvirkni hans. Smám saman verður samvinnan erfið-
ari. Málfræðisáhugi Konráðs verður ríkari og ríkari. Tóm-
as reynir fyrst að meta stafsetningar-þættina, en snýst að
lokum öndverður gegn öllu því, sem hann álítur gagns-
lausan hégóma hjá þeim Jónasi og Konráði, og slítur fé-
lagsskapnum. Þá er hann orðinn svo reiður, að hann getur
ekki fengið sig til að lesa Gunnarshólma (Bréf, 253)!
Fimmta árg. semur og kostar Tómas einn (1839). Síðan
verður hlé á útkomu ritsins. Þeir félagarnir sættast per-
sónulega, en taka ekki upp samvinnuna aftur, enda dó
Tómas 1841. Þegar Fjölnir kemur út næst, 1843, hefst ár-
gangurinn á æfisögu síra Tómasar eftir Jónas. Og upp frá
Því setja þeir Jónas og Konráð alveg sinn svip á ritið,
Jónas með skáldskap sínum í bundnu og óbundnu máli,
Konráð með hinum nákvæmu og smásmugulu aðfinnslum
að málfari og stafsetningu á bókum þeim, sem hann dæmdi
um. Þeir eru að vísu báðir vaxnir langt upp úr boðsbréf-
inu frá 1834, en andinn er sá sami að því leyti, að bók-
menntirnar eru þeim fyrir mestu.
Fjölnir er sundurleitt rit. Það finnum vér bezt, ef
hann er borinn saman við Ný félagsrit, sem Jón Sigurðs-
®°n einn réð svipnum á. Það voru að mörgu leyti gagn-
olíkir menn, með ólík áhugamál og ólíkan smekk, sem tóku