Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 12
10
VALSBLAÐIÐ
_
■;
Skemmtilegt augna-
blik fyrir okkar gamla
kjarnakarl, Árna
Njálsson að taka á
móti íslandsbikarnum
í annað sinn í röð.
Það er Guðmundur
Sveinbjörnsson vara-
formaður KSl, sem
þrýstir hendi Árna, og
árnar heilla með sig-
urinn.
Ferðalög- innanlands.
I sambandi við landsmótin var
farið á eftirtalda staði:
Meistaraflokkur, til Keflavíkur,
Akraness og Akureyrar.
2., 3. og 4 flokkur til Keflavíkur.
5. flokkur til Selfoss, Hafnarf jarð-
ar og Kópavogs.
Vegna bikarkeppni fór Valur B til
Hafnarfjarðar.
3. flokkur fór keppnisferð norður
í land í ágúst. Þátttakendur
voru 13 leikmenn auk farar-
stjóra Róberts Jónssonar. Mót-
tökur og gestrisni á Siglufirði
var frábær.
Knattspyrnufélagið Þór sá um
alla fyrirgreiðslu á Akureyri og
var hún eins og bezt varð á kosið.
Einnig voru móttökurnar við Mý-
vatn góðar.
Leikirnir fóru þannig:
Valur—Ksf. Siglufjarðar 3:3, 5:1.
Valur—Ungm.s. Mývetninga 2:0.
Valur—Ksf. Þór, Akureyri 11-2.
Valur—Knattsp.f. Akureyrar 3:1
Valur—Knattsp.f. Akureyrar 3:1.
Heimsóknir:
Valur átti rétt á vorheimsókn
þetta ár. Búið var að semja við
A-Þýzkalandsliðið að leika hér tvo
aukaleiki eftir að landsleik þeirra
lyki hér í maí. Það brást hinsvegar
að þeir kæmu. Var þá hafizt handa
um útvegun nýs liðs og með góðri
aðstoð Björgvins Schram tókst að
fá hingað skozka 1. deildarliðið
Hearts og léku þeir þrjá leiki.
Leikirnir fóru þannig:
Hearts—I. B. K. 6:0
Hearts—Valur 4:0
Hearts—Úrval Svl. 3:3
Því miður var veðrið ekki hlið-
hollt okkur og varð nokkur halli á
heimsókninni.
Þátttaka í Evrópukeppni meist-
araliða:
Sem íslandsmeistari hafði Val-
ur rétt til þátttöku í Evrópu-
keppni meistaraliða og var ákveð-
ið að nota þann rétt. í fyrstu um-
ferð drógst Valur á móti Luxem-
borgarmeisturunum La Jeunesse
d’Esch og áttum við rétt á fyrri
Hermann Gunnarsson hefur skorað annað mark Vals í úrslitaleik Islandsmótsins og
Reynir Jónsson nýtur þess ánægjulega augnabliks að sjá knöttinn velta yfir marka-
línu hjá Fram. Hrannar í Fram staðfestir aðeins orðinn hlut. Markmaður Fram
gerði sitt, en það dugði ekki.