Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 61

Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 61
VALSBLAÐIÐ 59 Daginn eftir þetta samtal gekk ég með einhverjum piltum niður Bakarabrekku og kemur þá maður á móti okkur, yfir brúna á lækn- um. Hann tók ofan að fyrra bragði, draup höfði til mín og gekk áfram. Hann gekk mjög hratt. Það kom fát á mig og ég áttaði mig ekki á, hver þetta væri. Einn af piltunum sagði: Hvaðan þekkir Indriði Ein- arsson þig? Þá rann upp ljós fyrir mér. Ég fann að ég roðnaði af gleði. Það var fyrsti maðurinn, sem ég veit að tæki ofan fyrir mér. — Ég var hreikinn með sjálfum mér, en lét ekki bera á því við hina. Næsta þriðjudag var ég tekinn í Verðanda og varð hrifinn af vin- áttusiðunum. Ég varð brátt áhuga- mikill félagi í stúkunni og kynnt- ist mörgu góðu fólki. Mest þótti mér varið í Indriða og frú hans, og var hann mér svo ljúfur að hann tók mig stundum með sér á í skemmtigöngu og talaði við mig um bókmenntir og fræddi mig um margt. Ég gleymi aldrei kvöldi einu milli jóla og nýárs ári seinna, er við gengum saman inn í öskju- hlíð. Það var blæjalogn og tungl- skin og hrímþoka lá yfir hið neðra og sveipaði bæinn gráhvítri slæðu, en hvítur hrím-friðarbogi stóð yf- ir bænum. Það var mjög einkenni- leg fegurð, og svo var Indriði að segja mér uppistöðu í hugsuðu leikriti, sem var að myndast í huga hans. — Ég var fullur lotningar yfir því láni að vera tekinn af slík- um manni inn í bókmenntatrúnað hans. Mér fannst ég fá meira manngildi og sál mín teigaði í sig tvær fegurðarnautnir í einu: nátt- úruna og listirnar. Séra Friðrik Friðriksson. Undirbúningsárin. Minningar frá æskuárum. FÆREYJAFERÐ lenzkra. Mörgum verður þessi ferð minnistæð. Það var ógleymanlegt að teyga í sig þetta ramm-færeyska andrúmsloft, þar sem Dönum hef- ur aldrei verið sýnd nein linkind. Við Islendingar megum vera stolt- ir yfir því, að íslenzkt blóð skuli renna í æðum þessa ágæta fólks. Erlendur, bróðir Páls, var þarna með okkur allan daginn. Hann fylgdist vel með íþróttamálum í Færeyjum. Til dæmis var hann sá, sem aðallega sá um móttöku Vík- ings í sumar. Þeir bræður töluðu báðir íslenzku vel, enda báðir menntaðir hér á landi. Það er sagt, að engir fái eins góðar viðtökur í Kirkjubæ og Islendingar. Það er gleðilegt til þess að vita, og er það sönnun þess, að þeir vilja helzt allr eiga vingott við okkur og væri okkur það mikill sómi, ef við gæt- um komið eins fölskvalaust fram við þá og þeir við okkur. Um kvöld- ið héldu flestir í Sjónleikarahúsið og fengu sér snúning. Þetta var seinasta kvöldið í Færeyjum, og er ekki að efa, að margir skemmtu sér konunglega. Daginn eftir kvöddum við Þórshöfn og héldum til Tvöroyri. Margir komu til að kveðja okkur og var engu líkara en að sumt fólkið, sem við bjugg- um hjá, væri komið til að kveðja nánustu ástvini sína, svo mikill var innileiki þessa ágæta fólks. Við gátum lítið aðhafzt, nema sungið og hrópað húrra, en þó held ég að fólkið muni okkur enn, og að við með framkomu okkar höfum held- ur aukið hróður Islands í Færeyj- um. Báturinn, sem flutti okkur til Suðureyja hét Tórshavn. Hann var ekki stór, en vel byggður. Á leið- inni fengum við hið versta veður og urðu næstum allir sjóveikur, og sumir voru nær dauða en lífi og held ég, að fyrirliðinn hafi þar slegið met. Eftir 4y2 klst. siglingu komum við til Tvöroyri. Þar var tekið á móti okkur með kostum og kynjum. Við vorum keyrðir hið fljótasta í húsin, þar sem við átt- um að halda til, til þess að við gæt- um hvílt okkur fyrir leikinn, sem átti að byrja eftir 2 klst. Því miður var veðrið ekki sem bezt, og leizt 19 5 2 — Framh. af bls. 53. okkur bölvanlega á allt. Þó átti þetta eftir að breytast. Við unnum leikinn 3 :1 og er það alveg furða, því menn voru vægast sagt illa fyr- ir kallaðir. Um kvöldið var dýrðleg veizla og dansað á eftir. Þessi kvöldstund verður ógleymanleg, svo glæsilegar voru móttökurn- ar af hálfu þeirra í T.B. Þarna fannst okkur ríkja hinn mesti íþróttaandi, sem fyrir fundum í allri ferðinni, að öllum ólöstuðum. I hófinu voru margar ræður flutt- ar og skipzt á gjöfum. Dómarinn talaði t. d. fimm sinnum og var hann að afsaka dóminn og er ég ekki fjarri, að hann hafi mátt það. Hafsteinn, fyrirliði, hélt snjalla ræðu og hrósaði dómaranum, þó að hann hafi fundið að honum, meðan á leiknum stóð. Hann skýrði frá því, að einu sinni hefði dómar- inn sagt við sig „no good gamli“ og gæti ég trúað, að einhver dómar- anna hefði tekið meira upp í sig við svipað tækifæri. Við sungum mikið, bæði íslenzka og færeyska söngva, sem við lærðum í ferðinni. Allt var þetta hin prýðilegasta skemmtun, og hin eftirminnileg- asta og er þá mikið sagt. Daginn eftir var okkur boðið í bíltúr. Við skoðuðum eyjuna í ágætu veðri og fannst mikið til um fegurð hennar. Þegar við komum aftur til bæjar- ins, beið okkar rjúkandi kaffi og kökur. Þessi seinasti dagur í Fær- eyjum var fljótur að líða, enda var það svo. að menn voru að koma til skips, er búið var að sleppa. Allt fór samt vel og enginn var stranda- glópur, þó suma hefði langað til þess í svip. Á hafnarbakkanum var f jöldi fólks, og var engu líkara, en að við hefðum dvalið allan tím- ann, sem við vorum í Færeyjum, á Tvöroyri. Það var sannarlega glað- ur hópur, sem sigldi með Drottn- ingunni til íslands í þetta skipti. Nú þurftu menn ekki að kvíða sjó- veiki því veðrið var hið bezta, sem kemur á þessum slóðum. Ferðin til Islands leið fljótt. Flestir höfðu frá ýmsu að segj a, en þagnarheitið verður ekki rofið hér. Það er, eins og fyrr hefur verið sagt. saga út af fyrir sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.