Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 58

Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 58
56 VALSBLAÐIÐ Gísli Sigurbjörnsson til v., mjög Vals- sinnaður „Víkingur". Til h.: Hanz Wick- mann, góður fylgdarmaður og félagi. Gunnar Hörður Björgvin Ægir Sigurður en Albert Guðmundsson kom inn á fyrir Hörð. Að vonum voru menn slegnir eftir þessar ófarir, en í veizlunni, sem okkur var haldin á eftir hresstust menn dálítið. Gísli hélt ræðu og færði Þjóðverjunum fálka að gjöf, en við feng- um bækur og skjöld með knatt- spyrnumanni á. Undir borðum var sungið mikið og lék Her- mann á fiðlu við mikinn fögn- uð. Mjög var orðið framorðið, þeg- ar komið var aftur til Barzighau- sen. Næsta dag, 3. sept., var risið árla úr rekkju og morgunverður snæddur. Nú skyldi haldið upp í Harzfjöll, en ekki veitti af degin- um, því margt var þar að sjá og leiðin löng. Um hádegisbilið var komið til eins af æskulýðsheimil- um Knattspyrnusambands Neðra- Saxlands, og snæddur hádegis- verður. Eftir matinn var gengið um húsakynnin og þau skoðuð, en allt var þarna til hreinnar fyrir- myndar. Síðan var ferðinni hald- ið áfram og ýmsir merkir staðir skoðaðir. Mikil náttúrufegurð er þarna og ekið var skammt frá Brocken, en það er hæsti tindur Harzfjalla og er mjög frægur úr þýzkum þjóðsögum. Eftir að hafa ekið um skógvaxna hálsa og djúpa dali var áð í Bad-Harzburg, en það er Hveragerði þeirra Vestur-Þjóð- verja. Hingað komu sjúklingar langt að og fengu hjúkrun. Kvöld- verður var snæddur í lítilli þorps- krá. Til Barzighausen var komið um miðnætti. Að loknum morgunverði daginn eftir, var æfing. Eftir há- degi var farið til Hannover og gerðu menn innkaup. Komið var aftur til Barzighausen fyrir kvöld- mat. Snemma var farið í háttinn þetta kvöld, því daginn eftir skyldi reynt að hefna ófaranna í Wolfen- búttel. Næsti dagur, 1. sept. var einn hinn skemmtilegasti í förinni. Meðan á morgunverði stóð kom hópur ungra stráka, sem bjuggu í Barzighausen um þær mundir og söng fyrir okkur. Þá færðu þeir okkur lítinn blómsturvasa með fallegum blómum í. Þetta var mjög eftirminnileg og hátíðleg stund. Tíminn til hádegis var notaður til ráðagerða um taktík og annað er við kom leiknum. Þá hafði Wick- mann fund með strákunum og gaf þeim góð ráð og bað þá nú að standa sig, því ef þeir ynnu leikinn í dag, þá væri ferðinni knatt- spyrnulega borgið. Eftir hádegið var lagt af stað til Hildesheim, en þar skyldi keppt. Leiðin þangað er iy2 tíma ferð. Hildesheim hefur verið mjög fallegur bær, en var lagður næstum allur í rúst í stríð- inu. Mjög mikið hefur verið byggt upp og búa nú þar milli 70—80 þúsund manns. Þrátt fyrir að veðrið væri ekki sem bezt var all mikið af fólki komið til að sjá leik- inn. Ekki er að vita, hvort allir Þjóðverjarnir sem sáu leikinn hafi verið eins ánægðir og þeir í Wol- fen búttel, eftir leikinn, en a. m. k. við í ísl. nýlendunni vorum ánægð- ir. Leikurinn var okkur til hins mesta sóma, þar sem a. m. k. 6 af beztu leikmönnum Þjóðverja frá því í seinasta leik léku með. Ægir skoraði eina mark leiksins, ágætt mark. Einar lék nú með og var það mikill styrkur fyrir liðið. Það má segja að allir hafi staðið sig með ágætum. Við unnum þennan leik 1:0. Þessir léku: Björgvin H. Árni Magnús Einar Halldór Páll Gunnar Hilmar Björgvin Ægir Sigurður Eftir leikinn var okkur haldinn veizla í kjallara ráðhússins. Þar voru mættir helztu fyrirmenn borgarinnar, en svo var það alltaf. Það virðist, að þeir hafi meiri tíma aflögu heldur en kollegar þeirra hérna heima. Þarna var Karl Laue, og helztu aðstoðarmenn hans í knattspyrnusambandinu þrátt fyrir að þeir hefðu öðrum hnöpp- um að hneppa, en þeir sáu um landsleikinn við Rússa, sem fór fram í Hannover nokkrum dögum seinna. Veizla þessi var mjög glæsileg og eftirminnileg. Margar ræður voru fluttar og færðu þeir okkur góðar gjafir. Borgarstjór- inn færði okkur mynd af Ráðhús- inu gerðu úr kopar, en Karl Laue bikar einn fagran frá knatt- spyrnusambandinu til minningar um komuna. Gísli þakkaði fyrir okkur og færði Karl Laue ísl. fána- stöng og þeim í Hildesheim fálka úr leir. Áliðið var orðið, er staðið var upp frá borðum. Við kvöddum nú gestgjafa okkar og þökkuðum fyrir okkur. 2. sept. var risið árla úr rekkju og morgunverður snædd- ur. Síðan var farangur tekinn saman og komið fyrir úti í bíl. Við kvöddum nú þetta ágætis fólk í Barzighausen og þökkuðum hrærð- ir í huga fyrir allan þann góða við- urgjörning, sem við höfðum notið Úlfar Þórðarson og frú, sem fylgdust með flokknum í Þýzkalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.