Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 49

Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 49
VALSBLAÐIÐ 47 Valur—Jeunesse í Luxemburg: Sigurður Dagsson „kíkkar“, jú, þarna er hann, en hver nær honum, Halldór lengst til hægri, eða Þorsteinn, sem á í höggi við Jeunesse-mann eða þá Sigurður segir myndin ekki til um. varnarlaus er Digenova skaut aft- ur. Einni mínútu fyrir leikslok fékk meistaralið okkar vítaspyrnu á Val fyrir hendi varnarmanns (Leik- mönnum Vals ber saman um, að það hafi verið hendi Sigurðar Dagssonar, sem snerti knöttinn! (Ritstj.). Langer skoraði 3:3. Þetta nægði Val til að komast áfram í Evrópu- keppninni. Valur í aðra mnfer’ð EvrópubikarÍcevpninnar. Þráðum áfanga var náð, að kom- ast áfram í Evrópubikarkeppninni, það hafði öðru íslenzku knatt- spyrnuliði ekki tekizt til þessa, en allri vegsemd fylgir vandi. Miklar vangaveltur fylgdu þessum úrslit- um, um það hvað gera skyldi. Sum- ir vildu bjóða Vetri konungi birg- inn, og láta hina ungversku meist- ara komast í kynni við hann, það gerði ekki svo mikið til þótt hann kældi þá örlítið, og þeir trúðu því og treystu að hinir trúu og áhuga- sömu knattspyrnuáhorfendur mundu glaðir skjálfa sér til hita í 90 mínútur, við að horfa á Vargas og Val, næstum hverju sem á gengi, og þar með yrði öllu „redd- að.“ Aðrir voru svartsýnni og sáu hundruð þúsunda tjón í krónum, trúðu ekki á vægð vetrarins, eða aðsókn áhorfenda, kuldinn og krömin myndi hræða þá af vellin- um. Þetta var að því er virtist allt komið á það stig að það hefði verið mikil óheppni fyrir Val að hafa staðið sig svona vel! Hér varð nú ekki aftur snúið, áfram varð að halda, og allt í ó- vissu hvert yrði farið næst, þar til dregið var 20. október um það, hvaða lið lentu saman í annarri umferð, og þá komu upp ungversku meistararnir sem næstu mótherjar Vals. Hófust þá þegar fundahöld hjá knattspyrnudeild og aðalstjórn, um livað gera skildi, og tekið að spá í þetta, hvernig bezt væri að taka á málinu. Kom fljótt fram ótti við leik hér heima vegna veðra, og á það minnzt að leika báða leik- ina úti. Fara nú skeyti á milli Ung- verja og Vals og ýmsar tillögur koma fram, þar á meðal að Ung- verjar komi fyrst heim, en þeir áttu fyrri leikinn heima hjá sér, og færi sá leikur fram sunnudag- inn 5. nóv. og síðasti leikurinn svo 15. í Búdapest. Að þessu var svo unnið. Vegna vantrúar á aðsókn átti að efna til happdrættis, þar sem vinningur var ferð til Búdapest og heim aft- ur, ennfremur voru ráðstefnur með stjórn iBR og fleirum um eftirgjöf á vallarleigu, takmörkun á boðsmiðum o.fl., og var þessi málaleitan Vals mjög vel tekið. Þegar forráðamenn Vals voru á fundi með blaðamönnum er for- maður deildarinnar kallaður í síma og var erindið það að Ung- verjar geta ekki komið hingað og leikið 5. nóv., en bjóða um leið að Valur leiki báða leikinaíUngverja- landi og tilnefndu dagana 15. og 17. nóv. Samið var síðan um þessa daga, og var samið um fríar ferðir og uppihald fyrir Val. „Ekki séð eins góðwn leikkafla“, segir Sigurður Ólafsson um síð- ari leikinn í Ungverjalandi. Því miður hafa blaðinu ekki bor- izt blaðadómar frá leik Vals og Vargas í Búdapest, en við tókum það ráð að ræða við Sigurð Ólafs- son, sem var gestur í för þessari og því hlutlaus, og segir hann frá móttökum, leikjunum og öðru er förina snerti. Sigurður sagði m.a.: Móttökur Ungverjanna voru frábærar á alla lund, vorum settir á mjög gott hótel, og farið var með okkur um borgina og sýndir merk- ir staðir og byggingar og listaverk. Farið var með okkur á Nep-leik- vanginn, sem tekur um 100 þúsund áhorfendur. Er það mjög glæsileg- ur leikvangur í alla staði. Við hlið hans er annar völlur, sem nær ein- göngu er notaður fyrir leikmenn til að hita sig upp fyrir leiki, og þar hafði liðið stutta æfingu. Nep- leikvangurinn er opinber leikvang- ur, en eigi að síður komu fjölmarg- ir borgarar til þess að vinna í þegnskaparvinnu til að flýta fyrir byggingunni. Það virðist ekkert til sparað. í göngum víða eru gólf og veggir lagðir marmara, og inn í milli komið fyrir myndum úr íþróttalífinu. Allt er þar sérlega hreinlegt og vistlegt. — — Ungverjar eru einhver bezta knattspyrnuþjóðin í Evrópu, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.