Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 55

Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 55
VALSBLAÐIÐ 53 siglingum í seinasta stríði og hafa þá margir búið í haginn fyrir sig. Til Klakksvíkur komum við um þrjú leytið. Á bryggjunni tóku á móti okkur íþróttaleiðtogar bæjar- ins, því hér bjuggu nú Færeyja- meistararnir. All mikið rok var nú komið og leizt mönnum ekki á blik- una, því við vildum ekki bíða með leikinn til morguns, fimmtudags, því á föstudag áttum við að keppa við H. B. í Þórshöfn, og ef til vill þann þriðja í röð við úrval úr Þórshöfn. Með okkur til Klakks- víkur kom fulltrúi I. S. F. og hon- um var það að þakka að engu var breytt. Leikurinn hófst kl. um 6 e. h., þá var komið afspyrnu rok og fór versnandi. Stóð rokið á þveran völlinn og fór boltinn 45 sinnum út af í fyrri hálfleik. Okk- ur tókst að skora eitt mark og gerði Stefán Hallgrímsson það. Þegar 20 mín voru liðnar af seinni hálfleik voru margir leik- mannanna komnir í skjól fyrir utan völlinn, og má segja okkar mönnum það til hróss, að þeir fóru ekki' á undan út af. Hér þýddi ekki annað en að hætta, og var það gert. Svo mikið var rokið að varla var stætt, og ekki bætti það úr, að haglél var líka. Eftir leikinn var kaffisamsæti fyrir okkur og voru menn þá heldur farnir að hress- ast. Þar var sungið, ræður fluttar og skipzt á gjöfum og merkjum fé- laganna. Heldur þótti þeim súrt í brotið, að fá ekki að spila annan leik við okkur, en úr því varð þó ekki, sem betur fór. Það er hæg- ara fyrir heima menn að jafna sig eftir svona útreið, því allir bún- ingar og jafnvel fötin voru gegn- blaut og annað en gaman að fara aftur í allt blautt og skítugt. Eftir kaffið var okkur boðið á ball og fórum við allir þangað. Alveg urð- um við hissa hvað kom af fólki í þessu líka veðrinu. Það var annars mesta furða, hvað menn náðu sér fljótt eftir volkið, og held ég, að flestir hafi skemmt sér prýðilega Til dæmis sögðu kunnugir að sum- ir hefðu stigið þarna fyrstu dans- sporin sín, en svo var víst, að allt- af urðum við fyrstir út á gólfið og var það glæsileg sjón, þegar þessi stóru drekar sveifluðu dömunum í kringum sig eins og prússneskir herforingjar eða skógarmenn. Um 2 leytið var haldið heim á leið. Flestir sváfu á hótelum, en hinir í prívat húsum. Það var ekki að furða þó einn forsvæfi sig morg- uninn eftir og yrði kyrr í Klaks- vík einn dag í viðbót. Þetta kom ekki að sök, en trúað gæti ég að sumum hafi ekki verið skilað sárs- aukalaust aftur. Morguninn eftir flutti Pride okkur aftur beina veg- inn til Þórshafnar Við þóttumst vel hafa sloppið, því sagt var, að þeir í Klakksvík væru óvenjufastir fyrir og er þá mikið sagt. Á föstudeginum spiluðum við HB í Þórshöfn. Leikurinn var mjög svipaður leik okkar við B36. Við unnum 2 mörk gegn einu. Hilmar skoraði fyrra markið en Gunni Gunn sigurmarkið, eins og í leiknum við B36. Þórshafnarlið- in eru bæði mjög svipuð að styrk- leika og eiga bæði nokkra góða leikmenn. Þó er það einkennandi fyrir bæði liðin, hve gamlir leik- mennirnir eru. Það mátti heyra á þeim í Þórshöfn nokkurn kvíða út af þessu og er það ekki að ástæðu- lausu, því einhvern tíma kemur að því, að menn leggi skóna á hill- una. Þeir eru með á prjónunum ýmsar breytingar og hafa þá helzt löngun til þess að fá þjálfara og reyna á ýmsan hátt að hæna yngri menn að knattspyrnunni. 28. ágúst kepptum við svo við úrval úr Þórs- höfn. Þessi leikur var ekki ráð- gerður, en við töldum það ekki eft- ir okkur að spila við þá aukaleik, þar sem ekkert óhapp hafði komið fyrir í undanfarandi leikjum. Ur- valið var allmiklu sterkara en hin liðin. Við skoruðum fyrst, en þeir skoruðu síðan tvö mörk og tókst okkur ekki að jafna. Við létum þetta ekkert á okkur fá og sung- um aldrei meira í búningsherberg- inu, en einmitt á eftir þennan leik. Völlurinn var mjög blautur og var lækurinn, sem rann við völlinn, eins og stórt fljót. Guðbrandur þurfti nokkrum sinnum að ná í boltann út í Gundadalsá og náði vatnið honum í mitt læri. Sögðu Færeyingarnir að völlurinn hefði verið „sum eitt rúnudíki og tað oysregndi“. Allir voru hressir og kátir, því um kvöldið skyldi haldið Valsmannaveizla í Þórshöll. For- maðurinn Martin Holm bauð gesti velkomna. Þar töluðu líka formenn HB og B36 og færðu þeir allir gjafir til handa Val og árnuðu okkur allra heilla. Jóhann farar- stjóri þakkaði og færði þeim merki og flaggstöng að gjöf. Einnig gaf hann I. S. F. íslenzkan Val úr keramik. Hápunktur skemmtun- arinnar var það. þegar Loftur, klæddur kvenbúningi, kom fram á senu og söng nokkur lög. Þótti Færeyingum þetta frábær skemmt- un. Á eftir var dansað og var ekki hætt fyrr en undir morgunn. Gam- an þótti okkur að fá tækifæri til þess að dansa færeyskan dans. Færeyski þjóðdansinn og þjóð- kvæðin er merkilegt menningar- fyrirbæri. Um aldir hefur sá siður haldizt, að þegar löngu dagsverki var lokið kom heimilisfólkið sam- an í reykstofunni svokölluðu. Kvöldseta, kvæðalestur hófst og sögur voru sagðar. Nú er þessi aldagamli þjóðarsiður að hverfa. Það er sagt að enginn komi til Færeyja, nema hann komi til Kirkjubæjar. Á sunnudeginum 30. ágúst var okkur boðið þangað. Leiðin frá Þórshöfn til Kii'kju- bæjar er aðeins 11 km. Við ókum í þægilegum bílum um hrjóstrugt heiðaland, brátt blasir við reisuleg bygging, Kirkjubær. Það vekur fyrst eftirtekt okkar, að hérna er eini staðurinn í Færeyjum, þar sem notaðar eru nýtízku vinnuvél- ar, enda mun hér vera einskonar bændaskóli. Elzti hlutinn af húsa- kynnum Kirkjubæjar er safnhús. Þetta er bjálkabygging, sem stað- ið hefur hundruð ára og getur vafalaust staðið langan aldur enn. Hér eru geymdir gripir ýmiskonar, margir þeirra aldagamlir. Þegar við komum þangað, stendur mið- aldra maður fyrir dyrum úti og býður okkur velkomna að Kirkju- bæ. Maður þessi er Páll Patursson, sonur Jóhannesar Paturssonar, er mest barðist fyrir frelsi Færeyja. Páll er nú kóngsbóndi að Kirkju- bæ og hefur komið nokkuð við sögu frelsisbaráttu þjóðarinnar. Við skoðuðum svokallaða biskups- stofu, er okkur var sagt væri 810 ára gömul. Þar var allmikið forn- ritasafn, bæði færeyskra og ís- Framhald á bls. 59.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.