Valsblaðið - 24.12.1967, Blaðsíða 22
20
VALSBLAÐIÐ
Stefán þar kosinn formaður, og
með honum valið ungt fólk og
áhugasamt: Þórður Guðmundsson,
varaformaður; Guðmundur Ingi-
mundarson, gjaldkeri; ritari Sal-
vör Þormóðsdóttir og meðstjórn-
andi Guðmundur Frímannsson.
í tilefni af þessu snéri ritnefnd-
in sér til Stefáns og bað hann að
segja svolítið um hvað þegar hefði
gerzt og áunnizt í skíðamálumVals
og hverjar væru framtíðaráætlanir
hinnar nýju stjórnar.
Stefán sagði m.a.:
Það var á s.l. sumri að það var
komið að máli við mig að taka að
mér formennsku í skíðanefndinni,
og leizt mér satt að segja ekki á
það. Ég hafði fylgzt með málum
skíðanefndanna undanfarið, og var
því ekki bjartsýnn. I fyrra sumar
málaði ég þó allan skálann utan,
sem þörf var á að gera, og í sumar
fór ég með Ægi, formanni Vals, til
að athuga málið nánar. Þegar við
komum þangað, var 41 rúða brot-
in, svo það var sannarlega þörf á
að taka hendinni til. Var þá hafizt
handa um að gera við þetta, og
þetta endar þannig að ég tek að
mér að verða formaður eins og eitt
ár til að byrja með. Við höfum svo
allt frá því að aðalfundurinn var
haldinn í sept. unnið að því að
ijúka byggingunni eins og hægt er
núna og er það langt komið. Hefur
þarna verið mikið um trésmíði að
ræða og hafa margir góðir Vals-
menn lagt hönd á plóginn, og má
þar nefna sérstaklega: Val Bene-
diktsson, Finnboga Guðmundsson,
Sigurbjörn Valdimarsson og Berg-
stein Magnússon.
Eftir er að ganga frá eldhúsi,
kyndiklefa og smávegis fleira, og
gerum við ráð fyrir að því verði
að mestu lokið upp úr áramótum,
eins og hægt er að ganga frá því
núna.
Unnið hefur verið að því að
þétta þakið og setja nýtt járn á
hluta þess, sem var orðin knýjandi
nauðsyn. Við höfum gert ýmsar
breytingar á innréttingu, sem við
teljum til bóta.
Við vonum því að þetta verði
komið í tæka tíð í það gott horf að
fólk verði ánægt með vistina þar
og aðbúnað.
Við höfum nú ekki gert neina
vetraráætlun, nema hvað ákveðið
er að um hverja helgi uppúr ára-
mótum verði þar alltaf sérstakur
maður, sem hefur umsjón með
skálanum og því sem þar fer fram,
og við vonum að þetta skíðaheimili
okkar verði sótt í vetur af sem
flestum Valsmönnum og öðrum
góðum gestum.
Um páskana verður svo opið
eins og venja hefur verið á undan-
förnum árum.
Framtíðarverkefni ? Ja, þau eru
ýms, og þá fyrst og fremst að láta
rætast gamla drauminn um renn-
andi vatn í skálann. Vona ég að
það takist næsta vor, og verði skál-
inn sóttur þolanlega í vetur, ætti
að takast að kljúfa fjárhagshliðina
á því máli. Þá er nauðsynlegt að
endurnýja pallinn fyrir framan
skálann og verður í það ráðizt með
vorinu, svo og skíðageymsluna, og
sitthvað fleira þarf að ráðast í.
Ég vil endurtaka það að við von-
um að skálinn verði sóttur í vetur.
Það er okkur ánægjuefni, og laun-
ar okkar strit, og þá erum við
ánægð að starfa að þessu.
Þá vil ég láta í ljós þá von að
þeir sem fara á skíði noti útiloftið,
og hreyfinguna með því að fara í
göngu eða þá að leika sér í brekku.
Þetta er sagt vegna þess að stund-
um sést fólk sitja inni í skálanum,
jafnvel yfir alla páskana, og fara
varla út á skíðin. Þetta líkar okk-
ur ekki, og finnst það að misnota
plássið og gott tækifæri til hollrar
útivistar.
Þá vonum við að næsta sumar
verði knattspyrnumenn og hand-
knattleiksmenn tíðir gestir í skál-
anum um helgar. Væri okkur það
mikil ánægja, og ég tala nú ekki
um ef það væri skipulagt þannig
að þeir legðu hönd að ýmsum smá-
verkum, sem gera þarf, eftir nán-
ari samkomulagi, stund og stund,
það yrði í okkar allra þágu.
Ég er ánægður með þetta unga
fólk, sem hefur valizt með mér í
stjórn deildarinnar, það er mjög
áhugasamt og boðið og búið til að
vinna, sagði Stefán að lokum.
F. H.
BADMINTONDEILD
STOFNUÐ
Páll Jörundsson, form. Badmintondeildar.
„Vona að þessi deild, falli inn
í félagsstarf Vals, í anda
íþróttanna,“ — sagSi hinn ný-
kjörni formaður í nýstofnaðri
badmintondeild í Val.
Það má með tíðindum teljast
þegar stofnuð er sérstök deild um
tiltekna íþróttagrein í félagi voru,
en það gerðist í haust, eins og ann-
arsstaðar er sagt frá í blaði þessu.
Ritstjórninni þótti hlíða að ná
tali af formanni deildarinnar, Páli
Jörundssyni, og biðja hann að
segja örlítið frá sjálfum sér, svo
og hvað honum lægi á hjarta varð-
andi badmintondeildina í Val.
Páll var heldur tregur, og taldi
að hann hefði ekki frá miklu að
segja, því stutt væri síðan badmin-
tondeildin hefði verið stofnuð, og
því lítið gerzt. Áður en við komum
að sjálfri starfsemi badminton-
deildarinnar, spyrjum við:
Hefur þú lengi haft áhuga fyrir