Valsblaðið - 24.12.1967, Side 26

Valsblaðið - 24.12.1967, Side 26
24 VALSBLAÐIÐ /ddeidar dddö, orenóen 70 ara Ef okkur í ritstjórn „Vals“ hefði dottið í hug að Reidar Sörensen væri að verða sjötugur, hefðum við látið það bíða að fá hann til að segja frá dvöl sinni hér á landi, og sínu mikla æfintýri er hann, Miil- ler og þeir félagar fóru yfir Sprengisand um hávetur, en það birtist í blaðinu í fyrra, og varð mörgum mikið skemmtilestrarefni. Staðreyndin er að hinn 20 okt. s.l. átti Sörensen 70 ára afmæli. Við sem þekkjum Sörensen og höfum fylgzt með honum vorum ekki al- veg sátt við þetta, okkur fannst útlit hans ekki vitna þar um, eldlegur áhugi hans og glögg- skyggni á marga hluti gáfu þetta á engan hátt til kynna. Þó er það svo að Sörensen átti á sín- um tíma við mikið heilsuleysi að stríða, og vafalaust hefur þar ráð- ið mestu, að ekki fór verr, að hann var vel byggður, vel þjálf- aður, lifði alla tíð reglusömu lífi, svo og viljastyrkur hans þegar mikið lá við. En þrátt fyrir þetta, og svo ald- urinn er Sörensen síungur í anda og fátt er það, sem hann ekki fylg- ist með og myndar sér ákveðnar og skemmtilegar skoðanir um. Það má koma hér fram að ég hef oft skemmt mér konunglega við að lesa bréfin hans, þar sem hann rökræðir hin ólíkustu málefni, og þá oft skemmtilega ómyrkur í máli- Margir sem kunnugir eru, munu mér sammála um það, að það hafi verið íslenzkum íþróttum mikil heppni, þegar Sörensen ílentist hér, fyrst sem þátttakandi og kennari í frjálsum íþróttum í lR, og síðar sem knattspyrnuþjálfari í Val um nokkurt skeið, en þar að bjuggu Valsmenn lengi. Það var þó ekki ætlun hans að dvelja hér langdvölum, hann ætl- aði að vera hér aðeins í 6 mánuði, en það urðu um 16 ár, og það er í rauninni skemmtilegt til þess að vita að þessi 16 ár gerðu hann að eins miklum Islendingi, og hann er Norðmaður, og víst er um það, að heimili hans ber meiri keim af Islandi en Noregi. Að þessu sinni verður ekki rifj- uð frekar upp lífssaga Sörensens, eins og við Valsmenn vitum hana, og sú þýðing sem afskipti hans höfðu fyrir félagið, það hefur ver- ið að því vikið áður í Valsblaðinu og síðast í fyrra ræðir hann nokk- uð þessi mál frá sínum bæjardyr- um séð. Hinsvegar langar mig til að draga fram þátt í lífi hans sem mun flestum lítt kunnur, enda á Sörensen það til að vera dulur og að flíka ekki alltaf hug sínum öll- um. Við sem nutum þjálfunar hans fannst hann oft geta verið harður í horn að taka og vægðarlaus, og kröfuharður, og mun ýmsum hafa þótt nóg um, en þetta var aðeins hans lífsskoðun, að „enginn yrði óbarinn biskup“. Hver sem svikist um í æfingu, væri að svíkja sjálf- an sig, svíkja hann persónulega, og Val, og það var meira en hann þoldi. En bak við þetta harða lundar- far, sem okkur fannst, slær líka viðkvæmt hjarta, þegar svo ber undir, sem gerir manninn enn merkilegri og ágætari en við þó hefðum talið hann vera. Sörensen var tregur að segja mér söguna af drengnum sem sat við húsdyrnar hjá honum þegar hann eitt sinn kom heim, en það gerðist á hernámsárum Noregs. Drengurinn, sem hafði meðferðis aðeins lítinn fatapinkil, bað Sören- sen að lofa sér að vera hjá sér, því hér vildi hann vera. Fundum þeirra, drengsins og hans hafði borið saman nokkru áður á heimili mágs Sörensen, er þeir unnu saman að kálrækt. Var drengurinn þá aðeins 8 ára gam- all. Féll þeim vel saman þar á bæn- um. Þeir voru sendir langt inn í skóg- inn með nautpening, og annaðist Reidar Sörensen. Sörensen þá alla matreiðslu, og var þetta drengnum mikið æfin- týri. Drengurinn hafði fagra söng- rödd og söng hann svo undir tók í skóginum, og vakti þessi hrokkin- hærði glókollur hrifningu þeirra sem á hlýddu. Þegar þeir komu svo aftur heim til Hamar þar sem báðir áttu heima, heimsótti drengurinn vin sinn daglega að kalla. Eftir nokkra stund flytja foreldrar hans í annað byggðarlag, og allur samgangur hættir með þeim félögum. Líður nú nokkur tími eða þar til á jólunum 1941, að Sörensen fær heimsókn, og er vinur hans þá kominn aftur og er með föt sín undir hendinni. Hann hafði ekki góða sögu að segja. Móðir hans hafði strokið af heimilinu, og enginn vissi hvar hún var niðurkomin, þetta hafði æst hinn ólánsama föður svo upp að hann kastaði drengnum á dyr. Og nú hef ég engan til að vera hjá nema þig, sagði drengurinn kjökr- andi. Það var greinilegt, að Sören- sen komst við er hann sagði frá þessu, og að þessi orð drengsins hafa náð að snerta hjarta Sören-

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.