Valsblaðið - 24.12.1967, Qupperneq 37

Valsblaðið - 24.12.1967, Qupperneq 37
VALSBLAÐIÐ 35 lega er að ef ég fer að gera það upp við mig, finnst mér sem hug- ur minn sé eitthvað á þá leið, sem sagt er um marga móðurina að erfiðasta barnið sé henni kærast! Valsmennirnir voru ákaflega erf- iðir á vellinum sem mótherjar, og við urðum oft að láta í minm pok- ann fyrir þeim, en þegar leik lauk voru Valsmennirnir mínir beztu félagar, og skemmtum við okkur oft saman, og það eftir úrslita- leiki! Og þessi afstaða til þeirra er sú sama enn í dag. Ef ég minnist á einstaka leik- menn Vals frá þessum tíma, koma fram: Hermann Hermannsson, sem var einn okkar allra beztu mark- manna og vafasamt að aðrir hafi náð lengra, maður var aldrei ör- uggur, þótt maður væri kominn innfyrir og við hann einan að etja. Grímar Jónsson var fljótur og laginn og varð maður alltaf að gæta sín mjög fyrir honum. Frí- mann Helgason var sterkur leik- maður í margföldum skilningi. — Hrólfur Benediktsson var drif- fjöður í liðinu, áhugasamur, vak- andi á vellinum og mjög líflegur, og stjórnaði oft með köllum, þótt hann væri ekki fyrirliði, Jóhannes Bergsteinsson var góður leikmaður og fjölhæfur, og lagði mest upp úr því að ná samleik, og því naskur að finna hættulegar opnur í vörn mótherjanna. Guðmundur Sigurðs- son var skemmtilegur mótherji, því mitt í hita leiksins gat hann slegið uppá glens og grín. Þá var Gísli Kærnested eftirminnilegur fyrir þol sitt, kraft og einbeitni. Agnar Breiðfjörð var skemmtileg- ur og eftirminnilegur leikmaður og sama má segja um Hólmgeir Jóns- son, og báðir voru þeir góðir ferða- félagar í Færeyja-ferðinni 1930. Ellert Sölvason var sérlega góður útherji, og í honum var mikil knattspyrna, og fáa hef ég séð gefa eins góðar sendingar fyrir markið og hann. Magnús var lipur og leik- inn, snöggur og léttur 1 lund. Þá má ekki gleyma Sigurði Ólafssyni, sem alltaf var styrk stoð í vörn Vals, alltaf í góðu skapi og einn þeirra sem skemmtu sér í leik. Jón Eiríksson varð fljótt mjög leikinn með knöttinn, og kom hon- um oftast til samherja, og vann það nokkuð upp að hann var ekki fljótur að sama skapi. Því miður varð hann að hætta of flj ótt vegna náms. Já, sagði Þorsteinn og brosti við, þetta voru mótherjar sem við í KR áttum oft í brösum við, og sérstak- lega var það vörnin, sem ekki tók neinum vettlingatökum á okkur, og það var sannarlega betra að leika með ykkur í úrvali, en að hafa ykk- ur á móti. Eg get líka bætt því við að bæði þú og Grímar léku með KR til að styrkja lið okkar, og ég held að það hafi verið í einu skipt- in sem það gerðist að KR styrkti lið sitt með utanfélagsmönnum. Það er líka athyglisvert að marg- ir af þessum góðu félögum Vals frá þessum tíma hafa haldið tryggð við félagið og unnið að því að gera það eitt traustasta í landinu, og mannvirkin á Hlíðarenda hefðu tæpast séð dagsins ljós ef þeirra hefði ekki notið við. I þessu sam- bandi vildi ég segja við hina yngri Valsmenn, að þið eigið að halda áfram að starfa fyrir félagið, þó þið hafið lagt skóna á hilluna, og taka þessa gömlu góðu félaga ykk- ur til fyrirmyndar, með því gerið þið Val enn sterkari. I þessu sambandi vil ég geta þess að á sextugsafmæli mínu fékk ég flestar kveðjur frá Valsmönn- um, sem mér þótti skemmtilegt og snerti viðkvæman streng í huga mínum. Fyrir þessa vinsemd þakka ég Valmönnum alveg sérstaklega. Minnisstæð atvik. Víst voru alltaf skemmtileg at- vik að koma fyrir, og eftirminni- leg á ýmsan hátt, en ég held að ég hafi gleymt þeim öllum, segir Steini, kímir í kampinn, og dettur sýnilega eitthvað í hug. Það var einu sinni, heldur Steini áfram, að ég varð að gjalda fyrir prakkaraskap minn í leik við Val. Það var þannig að ég er kominn inní vítateiginn, og er aðklemmd- ur af Sigurði Ólafs, þér og Grím- ari, en gríp þá til þess úrræðis að slá knöttinn eldsnöggt með Iiend- inni, svo varla festi á auga, og sendi hann til Gísla, en mark var þó ekki skorað. Allir rétta upp hendur og kalla hendi, hendi, en dómarinn sá ekkert, og hélt leikur- Þorsteinn Einarsson, hin gamla knatt- spyrnuhetja, eins og ungur félagi hans úr KR sér hann í dag! inn áfram. Skömmu síðar fæ ég knöttinn og tek hann á síðuna, og legg þannig fyrir mig, en þá hrópa allir aftur: Hendi, hendi, og rétta upp hendurnar, og þá blístrar dóm- arinn, og Valur fær aukaspyrnu. Þarna galt ég fyrra brots, og gat ekkert sagt, en ég man hvað Sig- urður Ólafsson hló, því hann vissi það rétta! I annað skipti, en það gerðist á Akureyri, vorum við að keppa við lið þar og lékum undan vindi, og eftir fyrri hálfleik stóð 3:0 Akur- eyringum í vil. I síðari hálfleik leikum við á móti vindi, en þá skeð- ur það að knötturinn er kominn um það bil hálfan meter aftur fyr- ir endamörk, en Doddi hikar ekki við það að senda hann inná aftur, hvorki línuvörður né dómari tóku eftir þessu, en ég skoraði mark úr sendingunni frá Dodda. I þessum sama leik kemur eitt sinn sending fyrir markið, en þó það langt frá mér að ég næ ekki til hans, hvorki með höfði eða fótum. Tek ég það þá til ráðs að kasta mér fram og læt knöttinn koma í hendina þannig að hann dettur niður, og stend síðan upp og skora
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.