Valsblaðið - 24.12.1967, Side 42

Valsblaðið - 24.12.1967, Side 42
40 VALSBLAÐIÐ ef til vill yfirburði, en þegar mað- ur er kominn upp í meistaraflokk er maður bara lítill karl. Þar er harkan meiri, þar verður maður að leggja meira að sér, þar eru eldri menn og þroskaðri. Ég á þar enn ekki heima, ekki nógu vanur að leika svo harða leiki, og þarf að samlagast þeim betur, og til þess þarf maður marga leiki. Þar eru áhorfendur líka mun fleiri, og svo koma gagnrýnendurnir með sína dóma, þó segja megi að vægilega hafi verið á mér tekið til þessa, og heldur vinsamlegt það sem það er, en allt þetta raskar ró taug- anna! Ég er ákveðinn að æfa áfram og reyna að ná fótfestu í meistara- flokki, og það er víst draumur allra ungra knattspyrnumanna. Mér finnst andinn þar góður, og aðstaðan fyrir okkur er góð, og vil ég nefna að flóðljósin er ég ánægð- ur með, og mættu þau vera fleiri, það kemur. Það ætti að lengja æf- ingatímann úti þegar vel viðrar á vetrum. Nokkuð, sem þú vildir segja að lokum ? Eg tel, að það væri rétt að gefa yngri mönnum fleiri tækifæri til að leika í meistaraflokki en gert hefur verið undanfarið, og þá sér- staklega í æfingaleikjum, og leikj- um sem ekki varða stigakeppni. Ef þeir fá þessi tækifæri við og við halda þeir sig betur að æfing- um, og svo er það nokkurt aðhald fyrir eldri leikmenn í meistara- flokki, að stunda æfingar, þar sem um samkeppni gæti orðið að ræða. Menn eru oft alltof fastir í liðinu. Með þessu ætti að fást meiri breidd og þroski og úrval, því reynsluna fá menn fyrst og fremst í leikjum, sagði þessi ungi efnilegi leikmað- ur að lokum. Handknattleiku r: Ólöf Kristjánsdóttir 16 ára, fyrirluH. Annar fl■ kvenna. Það verður ekki annað sagt en að annar fl. kvenna í Val eigi skemmtilegan fulltrúa og geðþekk- an í Ólöfu Kristjánsdóttur, og þeg- ar við spurðum hana um ýmislegt varðandi dvöl hennar í Val, atvik og skoðanir, leysti hún skemmti- lega úr hverri spurningu og fer viðtalið hér á eftir: Ég byrjaði að leika handknatt- leik þegar ég var 12 ára, og naut þá kennslu Þórarins Eyþórssonar, sem er stórkostlega dásamlegur kennari og leiðbeinandi. Fyrsti leikur minn í handknattleik var í B-liði og að ég held við Ármann, og ég held að við höfum unniö. Jú, þetta var strax skemmtilegt allt saman. Ef ég fer að rifja upp eftir- minnilegustu atvik úr handknatt- leiknum held ég að það verði úr- slitaleikurinn við Þór í Vestm.eyj- um í Islandsmótinu úti í sumar. Við unnum þann leik 5:1 og það kom mér og okkur á óvart. Þetta var frá upphafi fjörugur leikur, og hinir æstu Vestmanna- eyingar lífguðu uppá tilveruna með hrópum og köllum, en þeir virtust ekki sem ánægðastir með sínar stúlkur: Þeir kölluðu til þeirra hvað eftir annað á þessa leið: „Ætlið þið ekki að standa við það sem þið hafið lofað og sagt!“ Þetta hafði engin áhrif á okkur, síður en svo. Það var líka ánægjulegt að heyra að keppendurnir úr Reykja- vík og reyndar Týsstúlkurnar stóðu með okkur og hvöttu okkur, og færði það jafnvægi í hrópin. Þórsstúlkunum þótti tapið eðli- lega miður, en þær kunnu að taka ósigrinum og óskuðu okkur til hamingju. Ég er ekki enn farin að „reka nefið“ í meistaraflokk, en maður gerir sitt bezta í von um að kom- ast lengra. Eg hef mj ög gaman að æfa handknattleik, en maður verð- ur að nota tímann vel, svo allt komi til skila, því ég er í skóla. Eg vil ráðleggja ungum stúlkum að iðka handknattleik, það er góð hreyfing. Ég hef gaman af að koma að Hlíðarenda og umgangast stúlk- urnar í æfingum, í leik og einnig utan leikvallarins, það er mér mjög góð skemmtun. Ég hef líka alltaf gaman af að horfa á meistaraflokk kvenna, en þær hafa verið sigursælar undan- farið. Þó var ég svolítið tauga- óstyrk í Islandsmótinu í sumar úti. Ég óttaðist að Ármann mundi ógna liðinu, en ekki var langt liðið á leikinn er við sáum að öllu var óhætt. Maður verður alltaf að vera bjartsýnn, og með þjálfarana Þór- arin og Sigrúnu Ingólfsdóttur, sem einnig er mjög góður kennari, ætti ekki að þurfa að kvíða, og við það bætist að alltaf eru að koma fram efnilegar ungar stúlkur, og mikill fjöldi undir handleiðslu Þórarins. Mér finnst Sigrún Ingólfsdóttir einna skemmtilegust í leik, og vildi mjög svo líkjast henni, ef hægt væri, annars á Valur margar góð- ar stúlkur í meistaraflokki. Það sem af er þessu keppnis- tímabili hefur okkur ekki gengið vel, en auðvitað verðum við að reyna að gera betur, berjast og æfa, það er eina ráðið. Að lokum: Ég er ánægð með fé- lagslífið í Val og ef allir standa saman, ætti allt að ganga vel, sagði þessi geðþekka unga stúlka. Jóhann Ingi Gunnarsson, 13 ára. Fjórði flokkur, handknattleikur. Jóhann Ingi Gunnarsson. Ég var 11 ára þegar ég byrjaði aðeins að æfa handknattleik í Val, en það var fyrst í fyrra sem ég æfði fyrir alvöru, var fyrsta svar Jóhanns Inga við ýmsum spurn- ingum um þátttöku hans í Val í handknattleik, en svo hefur hann komið við sögu í knattspyrnunni, og minnist hann einnig á það.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.