Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 50

Valsblaðið - 24.12.1967, Síða 50
48 V ALSBLAÐIÐ Valur—Jeunesse í Luxemborg, þrír Valsmenn hafa slegið hálfhring um knöttinn: Halldór, Samúel og Árni iðandi af fjöri og krafti. Tveir Luxemborgarar standa fjær. Vargas-lið það sem Valur átti að leika við, var meistari í fyrra, en er nú í 2—3 sæti í Ungverjalandi. Við það bætist að 3—4 menn úr liði Vargas leika með landsliði Ungverja. Það voru því engir smá- karlar, sem Valur átti að horfast í augu við. Það kom líka fljótt í ijós að þeir voru allmiklu betri en Valsmenn. Hinsvegar börðust okk- ar menn hetjulega við ofureflið, þrátt fyrir erfiða byrjun, því eftir 5 mínútur fá þeir á sig sjálfs- mark, en þeir létu það ekkert á sig fá, og í hálfleik stóðu leikar 4:0. Það merkilega var að síðustu 30 mínúturnar fengu þeir ekkert mark. Það má segja að liðið stæði sig mun betur í síðari hálfleik, og þá sérstaklega er á leikinn leið, og var það dálítið merkilegt, og ætti að undirstrika að þeir voru í góðri þjálfun. Ungverjarnir voru mjög góðir, sérstklega voru þeir viðbragðs- fljótir, höfðu afburða knattmeð- ferð, og voru ósmeykir við að skjóta. Vafalaust hefur Valsliðið haft svolítinn „skrekk" við þennan stóra leikvöll og þessa 40—50 þús- und áhorfendur. Á eftir leikinn fórum við í ferðalag um borgina, og skoðuðum mannvirki og sögulegar minjar. Víða mátti og sjá skreytingar í til- efni af 50 ára afmæli byltingar- innar í Rússlandi. Einnig var boð- ið til veizlu. Það virðist vera siður þar eystra að láta leiki fara fram hvorn á eftir öðrum, og svo var að þessu sinni, en þar áttust við Real Sara- gossa og toppliðið í Ungverjalandi, Ferencvaros, en eftir að hann var fyrir nokkru byrjaður, varð að af- lýsa honum vegna þoku. Sáum við á hreyfingum línuvarðarins á hvaða leið knötturinn mundi vera! en knöttinn og menn þar lengra sáum við ekki. Var leiknum því hætt og honum frestað. Allmikil þoka var einnig meðan leikur Vals og Vargas stóð yfir, en þó ekki svo myrk sem í síðari leiknum. Leikur Saragossa og Ferenc- varos fór svo fram daginn eftir kl. 1,30 og kom fjöldi áhorfenda, þótt á þessum tíma væri. Ungverjarnir unnu leikinn 3:0. Þetta var ákaf- lega fjörugur og skemmtilegur leikur. Var leikið af miklu kappi, svo að okkur þótti nóg um, og fór svo að Spánverja var vísað af leik- velli fyrir handalögmál, og ekki voru allir í heilum peysum þegar útaf var gengið. Það kom okkur spanskt fyrir að sjá smábendur leikmanna hér og þar um völlinn í hálfgerðum áflogum, og sá sem rekinn var af leikvelli tók sér hvað eftir annað stöðu sem hnefaleika- maður, og ógnaði næsta manni með tilburðum sínum! Eg er því ekkert undrandi, þótt það kæmi fram í ungverskum blöð- um að Islendingarnir hefðu leikið mjög prúðmannlega í leik sínum við Vargas. I þessum leik lék maður að nafni Varga sem hægri innherji, sem ég tel snjallasta knattspyrnumann sem ég hef séð. I heild höfðum við gaman af leiknum og sáum þar góða knattspyrnu. Eftir leikinn fórum við að „guða á „glugga“ verzlananna, en lítið held ég að hafi verið keypt. Verð var svipað á venjulegum varningi og hér heima að ég held, en vand- aðar vörur öllu dýrari. Síðari leikur Vals fór svo fram í 30 þúsund manna bæ um 80 km frá Búdapeest, Varpoloda að nafni, og var tekið mjög vel á móti okkur þar af bæjarstjóranum. Er þetta námubær, sem byggzt hefur aðallega á síðustu 15 árum, og gaf bæjarstjórinn okkur til minja mynd af námunni. Leikurinn fór fram rétt eftir há- degi, og munu hafa verið þar um 7000 áhorfendur, enda mun það ekki daglega sem Vargas sýnir sig á þessum stað, því lið bæjarins leikur í þriðju deild. Leikur þessi var mun jafnari en sá fyrri, og í hálfleik stóðu leikar 3:0 Vargas í vil. Síðari hálfleikur var ljómandi vel leikinn af okkar mönnum. Leit út fyrir að þeir hefðu greinilega lært af Ungverjunum, knötturinn gekk frá manni til manns. Og satt að segja minnist ég ekki að hafa séð eins góðan leikkafla hjá Val í seinni tíð. Þeir áttu tvö mjög góð tækifæri, þar sem skotin voru meistaralega vel varin. Þeir létu nú knöttinn velta á milli sín í hraða, sem þeir réðu við, og notuðu menn fyrir aftan sig ef það lokaðist fyr- ir sóknina. Þessi hálfleikur hefði því eins getað endað jafn. Á eftir leikinn var okkur boðið til veizlu, og vel veitt. Ekki komu leikmenn Vargas til veizlunnar og það afsakað með því að þeir ættu að leika áríðandi leik á sunnudag, og komumst við því ekki í kynni við þá nema á vell- inum. Eins og ég áður sagði var öll
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.