Valsblaðið - 24.12.1967, Page 56

Valsblaðið - 24.12.1967, Page 56
54 VALSBLAÐIÐ Björgvin Torfason: Björgvin Torfason: Vals- maður í hjartanu, en hætti störfum of snemma. Iltanför til Þfzkalands 1956 „Velheppnaðar ferðir taka eiginlega aldrei enda“ —, segir Björgvin Torfason í ferðasögu meistaraflokks Vals til Þýzkalands og Englands 1956. Því miður, hefur af ýmsum ástæðum, sumum óviðráðanlegum, dregizt að birta frásögn Björgvins af ferð þessari, sem er létt og lifandi skrifuð, og sannarlega verðurl ferð þessi einn þátturinn í sögu Vals, og á hún því heima í „Val“, og birtum hana þótt seint sé, og er höfundur beðinn velvirð- ingar á því hvað það hefur dregizt. Árið 1954 komu hingað þýzkir knattspyrnumenn í boði Vals. Var þetta úrval áhugamanna frá Neðra- Saxlandi og var þannig um samið að meistaraflokkur Vals skyldi síðan fara utan í boði þeirra. Því miður varð ekki úr utanför 1955 eins og búizt hafði verið við og lágu til þess gildar ástæður, en boðið var endurgoldið í ágústmán- uði í sumar. Undirbúningur þess- arar farar var næsta fábreytilegur og þau tækifæri sem slíkar ferðir hafa upp á að bjóða, lítt notuð. All mikil togstreita var milli manna um það, að hve miklu leyti liðið skyldi styrkt kappliðsmönn- um frá öðrum félögum. Kappliðs- nefnd Vals var ekki mótfallin að leita út fyrir félagið og var það reynt, en allir þeir, sem líklegir voru til að styrkja liðið, voru ekki fáanlegir, svo endanleg niður- staða var sú, að kappliðsmennirnir skyldu eingöngu vera skipaðir Valsmönnum. Fullyrða má, að þessi ráðstöfun varð mjög til þess að styrkja samheldni allra þátttak- enda og sýnir árangurinn það bezt. Laugardaginn 25. ágúst, árla dags, var lagt af stað. Fararkosturinn var flugvél frá Loftleiðum. Þátt- takendur voru þessir: Gísli Sigurbjörnsson, aðalfararstj. Sigurður Ólafsson, fararstjóri, Magnús Bergsteinsson, fararstj. Hermann Hermannsson, fararstj., Björgvin Torfason, fararstjóri, Baldur Jónsson, vallarvörður, Albert Guðmundsson, Árni Njálsson, Björgvin Daníelsson, Björgvin Hermannsson, Einar Halldórsson, Gunnar Gunnarsson, Halldór Halldórsson, Hilmar Magnússon, Hörður Felixson, Magnús Snæbjörnsson, Páll Aronsson, Sigurður Sigurðsson, Sigurhans Hjartarson, Stefán Hallgrímsson, Valur Benediktsson, Þorkell Gíslason, Ægir Ferdinandsson. Á leiðinni til Hamborgar var komið við í Gautaborg og stoppað þar í klst. Eftir 2ja tíma flug þaðan, eða um kl. 22, var komið til Hamborgar. Áflugvellinumtóku helztu fyrirmenn knattspyrnumála borgarinnar á móti okkur. Þar var og mættur Hanz Wickmann, en hann átti eftir að vera með okkur allan tímann og reyndist hinn bezti félagi. öll afgreiðsla og toll- skoðun gekk mjög vel, og vorum við að skammri stundu liðinni komnir niður á hótelið, þar sem við bjuggum, meðan dvalið var í Ham- borg. Hótel þetta er eign knatt- spyrnusambands Hamborgar, stór og glæsileg nýbygging og ber heit- ið „Haus des Sports". Þar beið okkar kvöldverður og gerðu menn honum hin beztu skil. Það skal strax tekið fram, að í hvert sinn, er sezt var að borðum, var alltaf eins og um einhverja stórveizlu væri að ræða, og þeir, sem ætluðu að leggj a af í ferðinni, bættu held- ur við þyngd sína. Daginn eftir, 26. ágúst, var keppt við úrval áhugamanna í Hamborg. Leikur- inn fór fram í einni af útborgum Hamborgar, sem heitir Harburg. Rétt áður en leikurinn hófst, gerði feykilegt þrumuveður og var völl- urinn rennblautur. Þeir, sem léku voru þessir: Björgvin H. (Þorkell) Árni Magnús Halldór Páll Sigurhans (Hilmar) Gunnar Albert Björgvin Dan. Hörður (Ægir) Sigurður. Leiknum lauk með sigri Þjóð- verjanna 6:4. Ægir skoraði 2 mörk og Albert og Sigurður sitt markið hvor. Leikur þessi var all- f jörugur og leit illa út, er andstæð- ingarnir höfðu skorað 3 mörk á fyrstu 15 mín., en við ekkert. Eftir leikinn var okkur haldið samsæti þarna í Harburg. Ræður voru flutt- ar og skipzt á gjöfum. Við fengum fána og merki sambandsins, en Gísli afhenti fyrir okkar hönd fé- lagsmerki og mynd af Gullfossi og hélt hann eina af sínum eftirminni- legu ræðum við það tækifæri. Odd- fáninn var afhentur í upphafi leiksins og var það gert í öllum leikjunum. Herra Steinwax kom til áður nefnds borðhalds og tók á

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.