Valsblaðið - 24.12.1967, Page 67
VALSBLAÐIÐ
65
Þarna er þingað um málið Sveinn Helgason bendir á gatið. Gunnar
Sigurjónsson stendur hljóður og prúður hjá, og sama gera þeir Jón,
Halldór og Magnús Snæ. Og dómarinn Guðjón Einarsson handleikur
knöttinn og lýtur niður niður að honum eins og hann sé að spyrja
hann hvaða leið hann hafði komið í markið. Og dómurinn fellur:
Mark — og því gat enginn á jarðríki breytt.
þess að vörn Akraness opnist. Lið-
in skiptast á upphlaupum og mikill
hraði er í leiknum. Á 19. mín. veð-
ur Ríkharður með knöttinn upp
völlinn og gefur til Þórðar sem
hleypur Valsvörnina af sér og skor-
ar fyrsta mark leiksins. Valsmenn
láta engan bilbug á sér finna og
gera harða hríð að Skagamönnum,
sem verjast vel þar til á 28. mín —
er þeim tekst að jafna fyrir mistök
hjá vörn Akraness. Það er Haf-
steinn Guðmundsson sem skorar
af stuttu færi- Og ennþá sækja
Valsmenn, sem reyna allt livað af
tekur að ná yfirhöndinni fyrir lok
hálfleiksins. Tíminn líður og ekk-
ert markvert skeður. Vallarklukk-
an sýnir að hálfleikur nálgast óð-
um, — og þegar ein mínúta er til
leiksloka fær Sigurður, vinstri út-
herji Vals knöttinn út á vinstri
kant og spyrnir í áttina að marki
Skagamanna. Knötturinn svífur
að hægra horni marksins og Magn-
ús markvörður hoppar upp — en
of snemma. Hann er kominn niður
þegar knötturinn fer yfir hann og
hafnar í markinu. Valsmenn hafa
tekið forystuna með 2—1 og dóm-
arinn flautar til hálfleiks.
Meðan á leikhléi stendur lægir
vindinn nokkuð, en rigningin eykst
að sama skapi.
Síðari hálfleikur er hafinn, þeg-
ar við komumst til sæta okkar.
Ekki eru liðnar nema 4 mín.
þegar Skagamenn jafna metin.
Aukaspyrna er dæmd á Val við
vítateig þeirra. Ríkharður fram-
kvæmir spyrnuna og spyrnir í
varnarvegg Valsmanna, en knött-
urinn hrekkur til hans og með
þrumuskoti sendir hann knöttinn
í netið, við mikil fagnaðarlæti á-
horfenda. Færist nú aukið fjör,
jafnt í leikmenn sem áhorfendur.
Skagamenn herða sóknina og má
segja, að þeir taki leikinn að mestu
í sínar hendur, en Valsmenn þétta
vörnina og hrinda hverri sókninni
á fætur annarri. Völlurinn gjör-
spillist af rigningunni, svo illmögu-
legt er að leika. Áhorfendur hvetja
leikmenn óspart, en mörkin láta á
sér standa.
Á 23. mín. gera Skagamenn enn
eina sóknarlotuna, en Valsmenn
hrinda henni með því að sparka
knettinum langt fram á völlinn,
fram undir vallarmiðju. Dagbjart-
ur, miðvörður Skagamanna er þar
fyrir og sendir knöttinn til baka
að Valsmarkinu. Knötturinn svífur
í boga að markinu og áður en nokk-
ur áttar sig er hann í netinu og
dómarinn dæmir mark. Áhang-
endur Skagamanna í hópi áhorf-
enda kunna sér engin læti fyrir
fögnuði en Valsmenn virðast ekki
átta sig á því hvað hafði skeð. Var
það mögulegt að mark hefði verið
skorað með spyrnu frá miðju vall-
arins. Sveinn Helgason miðvörður
Vals kemur hlaupandi til Helga
markvarðar og spyr, hvernig þetta
hefði eiginlega skeð. — Helgi bið-
ur hann bara að vera rólegan, því
knötturinn hafi farið yfir markið,
en þá bendir Sveinn honum á knött-
inn í netinu. Valsmenn hópast nú
í markið og sjá nú að gat er á net-
inu. Gat það verið, að knötturinn
hafi farið í markið gegnum þetta
gat. Þeir neita því að afhenda
Framhald á bls. 68.
Þarna er gatið á netinu, sem alltaf talar sínu máli um möguleikann,
að hinn regnþungi knöttur úr hinni háu spyrnu hafi farið bakdyra-
megin í markið!