Valsblaðið - 24.12.1967, Side 70
68
VALSBLAÐIÐ
Hve brjóstin þeirra bifast ótt
ef baráttan af kappi er sótt,
þá hristast litlar hendur tvær
og hjartað örar slær.
— En þá er hrópað: Maggi minn,
hvað meinar litli kubburinn"!?
En ekkert finnst þeim á við spark
ef af því gæti hlotizt mark,
því þá fer gleðin geisla-skær
að glampa í kringum þær.
En Kærnesteð með kaldri ró,
sá kann að nota hægri skó!
Og víst er þeirra von og þrá
að Valur verði ofaná,
og leikur þeirra hljóti happ
við hugans mikla kapp.
— Já: Nú var Tubbi til í slark;
hann tók á rás og skaut á mark!
Það kvað við óp ög ástarhót,
en annars vegar ragn og blót,
því boltinn þaut í netið nett
og nú var markið sett!!
— En Egill sýndi ekkert hik
og eins og píla komst á strik!
Og yndisglampi úr augum skein
og yngismeyjan há og hrein
þar hoppaði upp og höndum sló.
— Nú hafði hún fengið nóg!
Og skot frá Lolla litla söng,
en lenti fyrir utan stöng.
— Svo kvað við blístran hvell og há
og kveisan var nú liðin hjá!
— Já, húrra krakki, Valur vann!
Ég veðjaði á hann.
— Og heim við göngum glöð og kát
því gamli K.R. — hann varð mát!
Guðm. Valur Sigurðsson.
ot&tVtotvtoto.
SÖGULEGUR ÖRSLITALEIKUR - Framh. af bis. ts.
knöttinn, þegar dómarinn flautar
til leiks á ný, nema hann komi til
að sjá verksummerkin. Eftir dá-
lítið þjark og rifrildi hefst leikur-
inn á ný, er dómarinn hafði sótt
knöttinn í markið.
Hvorugu liðinu tekst að skora
það sem eftir er leiksins og dóm-
arinn innsiglar sigur Skagamanna
með því að flauta leikinn af.
Að leik loknum afhendir Sigur-
jón Jónsson form. KSl, Ríkharði,
Islandsbikarinn og áhorfendur
hylla sigurvegarana.
Þannig lauk þessari viðureign á
Melavellinum í það skiptið.
En sagan er ekki öll sögð enn-
þá. Strax að leik loknum hópuð-
ust menn saman og deildu ákaft
um síðasta mark leiksins. Sýnd-
ist þar sitt hverjum, eins og ger-
ist og gengur, um hvora leiðina
knötturinn hafi farið í markið. —
Þegar dagblöðin komu út á þriðju-
deginum eftir kom í ljós að þau
voru ekki sammála heldur. Við
skulum að lokum heyra hvað dóm-
arinn og nokkrir leikmenn höfðu
um þetta atvik að segja.
Dómarinn, Guðjón Einarsson,
sagði: ,,Ég athugaði marknetið áð-
ur en leikurinn hófst og það var
þá alveg heilt. Hvernig það hefur
rifnað, er erfitt að geta sér til um.
Línuvörður gerði enga athuga-
semd við síðasta mark Akurnesinga
og sjálfur sá ég ekki betur en að
það væri löglega skorað."
Helgi Daníelsson, markvörður
Vals, sagði m. a: „Ég misreiknaði
ekki knöttinn, sem Akurnesingar
fengu sigurmark sitt úr. Ég sá að
hann fór yfir þverslána."
Ríkharður Jónsson, fyrirliði Ak-
urnesinga, sagði m. a.: „Ég full-
yrði, að síðasta mark okkar var al-
gjörlega löglega skorað, enda hafði
ég góða aðstöðu til að fylgjast með
því.“
Einar Halldórsson, fyrirliði
Vals, sagði m. a.: „Ég er viss um
að síðasta markið var ólöglegt. —
Knötturinn féll næstum beint
niður úr talsverðri hæð og vegna
þess hve þungur hann var vegna
rigningarinnar reif hann einn
möskvann á netinu. Á engan ann-
an hátt hefur netið rifnað.“
Já það sýndist svo sannarlega
sitt hverjum. En eitt er víst, að
úr því fæst aldrei skorið, hvort
markið var löglegt eða ekki. —
Mikið var rætt og ritað um þetta
mark og deilur oft harðvítugar.
Netið varð meira að segja svo
frægt, að eitt blaðið stakk upp á
því, að gatið yrði skorið úr netinu
og geymt á safni ! ! !
Tilgangur minn með því að rifja
upp þennan leik, er ekki sá að
vekja um hann deilur á nýjan leik,
enda hygg ég að allir hafi sætt sig
við orðinn hlut. En hitt er, að leik-
urinn er mér minnisstæðastur
flestra leikj a, sem ég hef leikið um
ævina. Og eru það ekki einmitt hin
mörgu óvæntu atvik, sem gera
knattspyrnuna jafn vinsæla og
raun ber vitni, jafnt fyrir leikmenn
sem áhorfendur. — Hdan.