Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1908, Blaðsíða 78
54
ÓLAFUR s. thougeirssön:
spuröi hana að lokum, livaö hún heföi fvrir stafni sjálf,
hvort hún færi ekki stundum inn í borg, aö skemmta sér.
,,A!drei,“ svaraði hún skjótt. ,,Það kemur fyrir aö
eg geng hjerna út að hliöinu og lít útá götuna, tvisvar í
mánuði eða svo. Annars held eg mig heima við, fæ mér
eitthvað að dútla við, sit hérna úti með það, renni
huganum til þess sem liðið er og íhuga hvað verða muni
seinna meir.
Alphonse vildi alltaf fá mig til að koma með sér í
skemtigarðana og leikhúsin, svo að eg lét tilleiðast einu
sinni og fór með honum og Mariu litlu í leikhúsið. Það
er stórt og mikið hús, það er víst. Þar voru Ijós og hljóð"
færasláttur. Upp fór tjaldið von bráðar og keinur út
maður og segir eitthvað, svo allir fara að hlægja. Hann
fer um allan leikpallinn með ýmsum tilburðum og fólk
hlær. Hann hlær og rnargir hlægja að því. Hann syngur
og enn íleiri hlægja. Og þessi undarlegu læti ganga
lengi. En því hefir maðurinn þessa tilburði ? Ekki skil
eg í því. Eg skil ekki hvað hann segir né hvað hann
syngur né hvers vegna hann lætur svona undarlega. Því
segi eg við Alphonse þegar við komum heirn: ,,A!drei fer
eg í leikhús optar. Þið Maria skuluð fara, úr því að þið
skiljið hvað fram fer og hafið gaman af því. En eg er
orðin göntul og er búin að reyna og sjá margt. Eg sezt
hérna út fyrir á daginn og á kveldin þegar gott er veður
og !ít yfir það sem hefir drifið á dagana; það er bezta
skemtunin mín, drengur minn. “ Þá hugsa eg opt með
sjálfri mér : Hvað skeði þennan dag fyrir svo og svo
mörgum árum? Hvar var egþá, og hvað ætlaði eg mér
að gera þann dag? Nú, — gerði eg það? Hef eg komið
öllu í verk, sem eg ætlaði mér? Hef eg lokið dags-
verkinu?
Á hverju ári og hverjum degi hef eg kornið einhverjum