Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Blaðsíða 28
28
í VopnafirSi litlu fyrir 1850. Komu til Vesturheims 1892;
tóku heimilisrétt á landi í N. Dakota og stunduSu þar
bú nokkur ár. Fluttust því næst til Pine Valley nýlendu,
námu þar larid og voru þar búsett þar til 1906, að þau
settust að í Blaine, Wash., þar andaðist Jón fyrir fáum
árum.
MAGNÚS EINARSSON (Grandy) er fæddur 1862.
Foreldrar: Einar Grímsson og Agústa Magnúsdóttir
Guðmundssonar frá Sandi í Aðal-Reykjadal í Þingeyjars.
Magnús fluttist vestur um haf 1883. Leitaði isér atvinnu
að mestu leyti í N. Dakota. Kona hans er Margrét Jóns-
dóttir Jónssonar og Vilborgar Jónsdóttur frá Vestmanna-
eyjum. í Pine Valley bygð festi Magnús sér eignarrétt
á hálfu landi. og bjó þar til 1907, fluttist þá til Blaine,
Wash. og býr þar nú.
MAGNÚ5 JÓNSSON. Hann var sonur Jóns Magnús-
sonar bónda á Syðra-Skógarnesi í Miklaholtshreppi á
Snæfelsnesi, og konu hans Kristínar Þorleifsdóttur læknis
í Bjarnarhöfn. Kona Magnúsar var María Jónsdóttir
Benediktssonar og Bjargar Þorsteinsdóttur er lengi
bjuggu á Fjósum í Laxárdal í Dalasýslu; þar var María
fædd 1844. Hafði hún áður gift verið Guðmundi Guð-
brandssyni, velmetnum nianni þar í héraði; höfðu þau
eignast son, Eyjólf Sigurjón, tveim vikum fyr en faðir
hans andaðist. Magnús fluttist vestur um haf 1887.
Ssttist að í Hallson bygð í N. Dakota. Næsta sumar kom
kona hans vestur með börn sín: Eyjólf og Jón Guðmund
Björgvin, barn þeirra hjóna. Bjuggu nokkur ár við
Hallson, fluttust þaðan til Roseau bygðar í Minnesota,
námu land og bjuggu þar í 5 ár. Þaðan til Pine Valley
nýbygðar, og bjuggu þar sextán ár á heimilisréttar landi
sínu; ssldu þá landeignina og fætðu sig til bæjarþorpsins
Piney; hafði Magnús þar borðviðarsölu þar til 1923, að
kona hans andaðist. Ibúðarhús gott, með steinsteypu
kjallara reisti hann á Piney og geymslu byggingar aðauki.
Þau Magnús og María voru sæmdarhjón í hvívetna. Var
hann hneigður til lækninga og fús til hjálpar fólki og
dýrum, þar sem sjúkleika bar að höndum og reyndist