Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Blaðsíða 30
30
BENEDIKT GUÐMUNDSSON Benediktssonar, um-
ferðalaeknis og hreppstjóra að Hnausakoti í Miðfirði í
Húnav.s. og Ragnheiðar Eggertsdóttir, settaðri úr Víðidal
í sömu sýslu. Fluttist með föður sínum vestur um haf
til Winnipeg 1887. Nam land í Pine Valleybygð 1903.
Fluttist þaðan 4 árum síðar suður í Bandaríki. Kona
hans er María Guðmundsdóttir Ólafssonar frá Ósi á
Vatnsnesi í Húnav.s. Benedikt er skýr vel eins og hann
á kyn til, og afhurðamaður til verka og drengur góður.
SIGURÐUR ANDRÉSSON (And erson). Hann er
sonur Andrésar bónda að Hemlu í Vestur-Landeyjum í
Rangárbingi. Fluttist vestur um haf 1886 og settist að í
N. Dakota, nálægt Hallsom Hann er smiður góður,
einkum á járn og tók brátt að stunda bá iðn; einnig
hafði hann verzlun um nokkurt tímabil og hafði jafn-
framt búskap með höndum. Arið 1888 kvongaðist Sig-
urður, Ólínu Maríu Bjarnardóttir, bónda á Frostastöðum
og síðar á Sleitubjarnarstöðum í Skagafirði, Jónssonar
frá Haga í Aðaldal og konu hans Sigríðar Þorláksdóttur,
systir Gísla bónda á Hjaltastöðum í Skagafirði. Sigurður
og Ólína dvöldu í Dakota um 8 ár; fluttust baðan til
Roseau bygðar í Minnesota og námu bar land. Fluttust
síðan til Pine Valley nýlendu, námu bar land og voiu
bar við bú til 1918. Hafði Sigurður nokkur síðustu árin
haft hér verzlun í Piney. Aður Sigurður kvaentist Ólínu
átti hann 2 börn, Guðbjörgu, giftist manni af hérlendum
ættum, og Sigurð, búsettum í Piney sveit. Ólína var
ekkja áður hún giftist Sigurði. Fyrri maður hennar var
Egill Gíslason Jónssonar og Margrétar Gottskálksdóttur
frá Skarðsá. Andaðist Egill árið 1886; áttu bau bá á lífi
tvo sonu: Sigurbjörn, vélfræðing, sem nú mun eiga heima
í Lorarnie, Wis., kvæntur hérlendri kcnu og Guðmund,
nú í Winnipeg, kvæntur Ingibjörgu Sigmundsdóttur Jóns-
sonar frá Húsabakka í Skagafirði, Af 12 börnum sem
bau eignuðust Sigurður og Ólína, eru 4 á lífi: Egill, kvænt-
ur sænskri konu og búa bau í Chicago; Vilhelm, kennari
í heimspeki við Antioch College í Yellow Springs, Ohio;
Gústav Adolf og Valdimar er báðir eru giftir hérlendum
konum og búa vestur á Kyrrahafsströnd. Þau hjón Sig-