Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Blaðsíða 41
41
og búslóð 1927 og fluttu til íslands og settust að á forn-
um stöðvum á Austurlandi. Eymundur lézt 1927, en
ekkja hans, að sögn, enn á lífi. Eymundur var hæfileika
maður á mörgum sviðum, fróðleiksgjarn, skáldmæltur,
fjölfróður og skemtinn gleðimaður í viðmóti. Lærði
ungur járnsmíði í Kaupmannahöfn. Snillingur á flestar
smíðar, tré sem málm. Stundaði nokkuð lækningar á
yngri árum, en hvarf að mestu leyti fiá því hér í álfu.
Nutu þau hjó.a vinsældar hvarvetna sem kyntust.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON og kona hans
Sigríður, komu til Pine Valley bygðar 1903, námu land
og bjuggu þar nckkur ár. Fluttust þaðan til Gimli.
Guðmundur er látinn fyrir nokkrum árum (upplýsingar
um þau hjón hafa eigi náðst).
EINAR BJARNASON. Ættaður úr Hnappadalssýslu
kom til Pine Valley 1901. Tók heimilisrétt á landi og
bjó þar til 1927. Fluttist það ár til Sask. Kvæntist 1904
ekkjunni Kristínu Jónsdóttir, ættaðri úr Hornafirði. Börn
hennar eru: Bergur, kvæntur Stefaníu Stefánsdóttir Sig-
urðssonar, ættuðum úr Breiðdal; Þorsteinn, ókvæntur;
Karl, ógiftur; Guðrún, átti Jakob Sveinbjarnarson (Bend-
erson), bónda í Pine Valley,—dáin. Þóra gift enskum
manni, bónda í Pine Valley. Þau Einar og Kristín, voru
elju hjón og greiðvikin.
PÁLL SIGFÚSSON DALMANN. Foreldrar hans
voru Sigfús Jónsson Dalmann, úr Fljótsdalshéraði og
Margrét, fædd að Hofi á Völlum í N. Múlas.. Voru þau
hjón búsett í Winnipeg. Þaðan fluttist Páll til Pine
Valley bygðar 1903; nam land og stundaði búskap þar
til 1911. Fluttist þá til Winnipeg. Kona hans er Eng-
ilráð, dóttir Jóns Markússonar, ættuðum úr SkagafirÖi og
og konu hans Margrétar Halldórsdóttur, er búa í Winni-
peg. Páll er hæfileikamaður. Hefir lagt stund á hljóm-
list og ásamt konu sinni, sem er söngkona með afbrigð-
um, löngum vakið fjör og gleði á mannfundum. Varð
virðingarmaður (assessor) við byrjun sveitarstjórnar bygð-
arinnar og síðar í sveitarráðinu og jafnan styrktarmaður
nauðsynjamála.