Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1934, Side 32
32
sem þá bjuggu á Gröf, að Hvassafelli í Ej'jafirði, misseris
gamall; þar ólst hann upp til 1 7 ára aldurs, vann á ýms-
um stöðum og síðast hjá Kristínu, ekkju síra Jóns 1 hor-
lacius er bjó á Melgerði; bar kvæntist hann, Guðrúnu
Sigríði Halldórsdóttur Þor-
lákssonar og Guðrúnar
Rósu Jóhannesdóttur, Gun-
narssonar bónda á Hólum
í Eyjafirði. Áiið 1883 flutt-
ist Jóhannes ásamt konu
sinni vestur um haf og sett-
ist að í N. Dakota meðal
Islendinga; nam bar land
og stundaði búskap í 6 ár,
fluttist baöan til Roseau í
Minnesota og dvaldi bar
um fjögra ára skeið. Flutt-
ist baðan til Pine Valley
oýbygðar 1900; nam bar
land og bjó bar til 1918,
að hann seldi landeign sína
í hendur tengdasonar síns:
Eiðs Jónssonar og Astu
dóttur sinnar. Konu sína
misti hann 1923, og hefir
aðsetur hjá dóttir sinni Ástu. Börn beirra Jóhannesar
og Guðrúnar eru 4 á lífi; Ragnheiður, kvænt Páli trésmið
Magdal, búsettum í St. Paul í Minnesota; Gestur, kvænt-
ur Þórunni Jónsdóttur ættaðri úr Landeyjum; Helga kona
Jóns Stefánssonar, fyrrum kaupmanns að Piney, og Ásta
kona Eiðs Jónssonar.
Jóhannes er vel skýr maður og fróður um margt, eink-
um í fornum sögum Norðurlanda, og fylgist einnig með
viðburðum nútímans, á bókasafn all-mikið sem innineld-
ur ýmsan fróðleik, gamlan og nýjann. Kona hans var
dugnaðarkona mesta, ráðdeildarsöm og vel látin.
BERGÞÓR JÓNSSON. Hann er fæddur 10. apríl
1864 á Torfufelli í Eyjafirði bar sem foreldrar hans voru
búsett: Jón Jóhannsson og Bergbóra Sigurðardóttir Þórð-
Jóhannes Jóhannsson