Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1935, Blaðsíða 35
37
en tvær stúlkur ólu þau upp, SigríSi Jakobsdóttir Pálma-
sonar og Hólmfríði Jónsdóttir Sigurðssonar.
BJÖRN SIGURÐSSON HEIÐMAN fæddur á Breiðu-
mýri í Vopnafirði 1853. Foreldrar hans voru Sigurður
Rustikusson og Sólveig Sigurðardóttir erbjuggu á Breiðu-
mýri og síðar á Lýtingstöðum. Þau dóu þá er Björn var
kornungur, ólst hann því upp á ýmsum stöðum, þar til
hann var 1 7 ára að hann réðist sem vinnumaður til
bróður síns Sigbjörns S. Hofteig á Skeggjastöðum á
Jökuldal og dvaldi hjá honum, þar til Sigbjörn fluttist
vestur um haf til Minnesota 1878. Þá fór Björn að
Haugstöðum á Jökuldal og nokkuru síðar giftist hann og
fór að búa á Víðírhóli á Jökuldalsheiði og þaðan fluttist
hann að Ármótaseli og bjó þar 22 ár. Árið 1903 flutti
hann til Vesturheims og rakleiðis í Hólabygðina, keypti
þar land Þorsteins Jónssonar á Hólmi í Argylebygð er
hann hafði numið í Hólabygðinni. Þar bjó Björn í mörg
ár með miklum dugnaði, þar til hann sökum elli og
sjóndepru varð að láta af búskap, tók bá sonur hans,
Aðalgrímur við búinu og býr þar enn. Björn fluttist til
Glenboro, keypti þar gott heimili í útjaðri bæjarins; hefir
hann nú selt það heimili í hendur tengdasyni sínum,
Haraldi Freeman, Dvelja þau hjón nú hjá dætrum
sínum til skiftis. Björn má heita alblindur, en heldur
góðri heilsu að öðru leyti. — Björn er tvígiftur, fyrri kona
hans var Guðrún Pétursdóttir ættuð af Jökuldal, var hún
áður gift Halldóri Einarssyni bróðir Halls á Rangá.
Börn þeirra eru: Guðrún Jóhanna, gift Jónatan K. Stein-
berg og Jón Sigbjörn, giftur Rannveigu Sigtryggsdóttir
Hallgiímssonar, hvorutveggju til heimilis í Seattle, Wash.
Seinni kona Björns er Guðrún Valgerður Hallgrímsdóttir,
fædd á Fellssseli í Köldukinn 1860. Börn þeirra, sem
á lífi eru: I. Aðalgrímur, bóndi í Hólab. áður nefndur,
giftur Mable Friðfinnsdóttir Jónssonar. 2. Benedikt,
giftur Karólínu Kristjánsdóttir Sigurðssonar frá Katastöð-
um í Presthólahrepp. Þær Mable og Karólína voru
báðar fóstraðar hjá þeim hjónum Brynjólfi Jósefssyni og
Guðnýju Sigurðardóttir; Benedikt og Karóljna búa í
Glenboro. 3. Jóhanna, gift Hannesi Jónssyni Árnasonar,