Afturelding - 01.08.1987, Side 6
Trúin er nauðsynleg
Viðtöl við sænska þátttakendur á sjávarútvegssýningu
Fjöldi erlendra sýningargesta
og starfsmanna var á sjávarút-
vegssýningunni íLaugardal. Við
komumst í kynni við nokkra
aðila, sem auk afskipta af fisk-
veiðum, taka þátt í kristilegu
starfi. Fyrst varð á vegi okkar
Yvonne Anderson.
— Eg tilheyri hvítasunnu-
söfnuði í Fiskebáck, sem hefur
um 475 meðlimi. Við vígðum
nýja kirkju í apríl. Ég bý í borg-
arhluta sem hefur um 100.000
íbúa og þar í miðbænum byggð-
um við allstóra kirkju.
Sœkja margir sjómenn kirkj-
una ykkar?
Já, reyndar margir fiskimenn.
Einkunnarorð kirkjunnar er:
Pétur (fiskimaður). Hún stend-
ur á bjargi — steinhæð og glugg-
arnir eru eins og viti. Þegar mað-
ur kemur akandi lítur kirkjan út
eins og viti í hverfinu.
Flestir safnaðarmeðlimir eiga
sinn bakgrunn í sjósókn og veið-
um. Eru sjálfir sjómenn eða af-
komendur þeirra.
Starfar þú við sjávarútveg?
Nei, ekki beinlínis. Ég er hér
til að hjálpa manni mínum, sem
starfar við þetta. En mér þykir
gaman að koma hér. Þegar við
vorum að draga okkur saman þá
var hann sjómaður. Ég kann vel
við sjómenn, þeir eru fínt fólk.
Hvað finnst þér um ísland?
Mér finnst það mjög áhuga-
vert. Fólkið er indælt, ákaflega
opið og vingjarnlegt.
Hvernig komst þú til trúar?
Pabbi minn var hvítasunnu-
prédikari og ég ólst upp í trúuðu
heimili. Við vorum fimm syst-
kini og fluttum oft á milli staða.
En ég varð sjálf að velja það að
ganga þennan veg.
Hefðir þú viljað alast upp við
aðrar kringumstœður?
Satt að segja þá er ég þakklát
fyrir uppeldi mitt. Stundum finn
ég að mig skortir skilning á hög-
um fólks sem kemur úr öðru um-
hverfi. En þá veit ég að í söfnuð-
inum er annað fólk sem getur
betur sett sig í þeirra spor.
Eiginmaður Yvonne heitir
Hans G. Andersson og er mark-
aðsstjóri hjá Krabbeskárs Verk-
stad AB, en það framleiðir tœki
til meðhöndlunar á fiski, s.s.
flokkunarvélar, fœribönd o.fl.
Við spurðum fyrst hvort trúin
kœmi að gagni við söluna.
— Já, hún er allavega ekki til
sölu, svarar Hans hlæjandi.
— En í starfi mínu hitti ég
fjölda fólks og það hefur oft
hjálpað að vera trúaður. Og ég
get með góðri samvisku selt
fyrsta flokks fiskvinnsluvélar!
Mér finnst stórkostlegt að geta
byrjað hvern vinnudag með bæn
og að leggja öll mál í Drottins
hönd. Það veitir mikla öryggis-
kennd og mér er hjálp að því.
— Margir í fyrirtæki okkar
Hans G. Andersson og Yvonne Anderson.