Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 3
„Sjöstirnið“
á himni trúboðsins.
Árið 1883—’84 voru sjerstaklega miklar trúar-
hreyfingar meðal stúdentanna í Englandi, einkanlega
á háskólanum í Cambridge. Þessi trúaralda stafaði
sjerstaklega frá Moody, mannlega talað; og hún brotn-
aði ekki strax á klettum hleypidóma og vantrúar,
en barst áfram víða um heim, og má sjá hennar
glögg merki enn í dag.
Nafnkunnasti stúdentinn í Cambridge þessi ár
var C. T. Studd, milljónaeigandi, hann var náms-
maður í bezta lagi, og bezti knattleikamaður á öllu
Englandi; og þar eð hann sigraði í kualtleikum við
duglegustu útlendinga, ljek það orð á, að enginn
væri jafningi hans í þessari íþrótt. Nafn hans stóð
því í hverju blaði og fjelagsbræður hans þóttust af
honum.
Studd hafði heyrt margt um frelsarann þegar
í æsku. Og hann hafði snemma gefið Guði hjarta
sitt, og eignast frið Guðs barna. „En jeg var svo
eigingjarn, að jeg þagði um reynslu mína“, segir
hann sjálfur, „í stað þess að vitna um kærleika
Krists fyrir öðrum“. Kærleikur hans kólnaði því
og trúarlífið dofnaði. Lifði hann þannig 7 ár i and-