Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 47
47
Það þætti æði dýrt á vorum dögum, og þó sýnir
upphæðin sjálf oss ekki, hversu fáir höfðu efni á
að kaupa biblíu. Því að dagsverkið var þá metið
á tæpa 12 aura. Verkamaður varð því að vinna
5333 daga eða um 17 ár fyrir einni bibliu.
(„Missionæren".)
Elna licilaga bókin. Max Miiller háskóla-
kennari í Oxford sagði: „Þar sem jeg hef nú i
40 ár kennt Sanskrít við háskólann í Oxford, er
mjer vonandi óhæt.t að segja, að jeg hafi fremur
en nokkur maður annar í heiminum varið tíma mín-
um til að kynnast og rannsaka „heilagar bækur
Austurlanda". Og jeg verð að segja, það, að tónn-
inn, sem hijómar þar alstaðar, ef jeg mætti svo að
orði kveða, er — sáluhjálp fyrir verk vor. f’ær
kenna allar að maður verði að vinna sjer inn sálu-
hjálpina, og verðið er verk manns og verðskuldan.
Biblía vor, heilaga bókin vor frá Austurlöndum,
mótmælir frá upphafi til enda þessari kenningu.
Reyndar heimtar hún einnig góðverk, og heimtar
Þnu enn skýrar og ákveðnara en nokkur önnur
nheilög bók“, en þau eru hjer ekki annað en vott-
ur og afleiðing af þakklátum hjörtum. Þau eru ein-
ungis þakkarfórn, ávöxtur af trú vorri. fau eru
aldrei lausnargjald sannra lærisveina Jesú Krists.
Lokum ekki augum vorum fyrir því, sem fagur-
lega hijómar í öðrum „heilögum ritum“. En kenn-
um Hindúum, Búddistum og Múhameðstrúarmönn-