Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Blaðsíða 11
11
tíðarhorfur og nýjan frið. — Hann skoraði á ungu
mennina að reyna, hvað Kristur gæti gjört fyrir
þá. — — Þegar hann hefði farið að lesa biblíuna,
senr hann hefði vanrækt áður, hefði hann sjeð að
skilnaðarorð Krists til lærisveina hans hefðu verið:
»Parið út um allan heim og prjedikið gleðiboðskap-
inn allri skepnu". — Hann kvaðst hafa átt erfitt
með að losast úr hernum, en samt hefði það lán-
azt, svo að nú væri hann reiðubúinn að fara að
Guðs viija til Kína. Loks þakkaði hann þeim, sem
hefðu beðið fyrir sjer, og bað þá að halda því á-
íram.
Cassels sagði meðal annars, að þeir færu af
stað, af því að þeir þekktu krapt Guðs bæði af eig-
in reynd, og sjón í lífi annara. Kraptur hans væri
ekki minni í Kína en í Englandi, ef hjörtun væru
opin; þeir hefðu miklar vonir, og væru óhræddir
um að þær mundu rætast. Þá talaði hann um, að
allan þorra manna vantaði „hreysti trúarinnar".
„Þeir lesa“, sagði hann, „í biblíunni um Ruben,
sem vildi heldur gæta hjarða og búnaðar en fara í
stríð, — um Gilead, sem þorði ekki að fara yfir
Jórdan, og um Dan, sem gaf sig eingöngu við verzl-
un. — En þeir gjöra hið sama sjálfir. Hann tal-
aði hörðum orðum til allra „Rúbena, Gileada og
Dana“ þessa tíma, og sýndi þeim fram á, hversu
óviðurkvæmilegt það væri að hann, sem dó á kross-
inum, skyldi árangurslaust hrópa á liðsmenn.
C. P, Turner sagði, að nú væru 10 mánuðir