Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Qupperneq 9
1
ð
Hvar sem þeir töluðu, kom múgur og margmenni
til að hlusta á þá, og mörgum varð vitnisburður
þeirra minnisstæður, þessara manna, sem voru glað-
ú' að yfligefa iand sitt og tungu, vini, eignir og
þægindi til að boða fagnaðarerindið meðal heiðinna
þjóða, þar sem þeir gátu búizt við misskilningi,
hatri og ofsóknum.
Áður en þeir stigu á skipsfjöl, hjeldu þeir að
skilnaði afarfjölmenna samkomu í Exeter Hall í Lund-
Unum. Umhverfls þá sátu á ræðupallinum 40 fje-
lagar þeirra frá Cambridge, sem konmir voru til
að kveðja þá. Á þeim fundi voru töluð mörg á-
hrifa-orð.
Stanley Smith var aðalræðumaðurinn. Ræðu-
texti hans voru þessi orð í Salómons orðskviðum:
„Sá er til, sem Utbýtir ríkulega og fær æ meir og
meir; og sá er til, sem heldur inni meiru en rjett
er, og hefur þó að eins skort". Hann talaði skorin-
ort til landa sinna um að þeir „hefðu haldið inni
meiru en rjett væri“, og þvi væri hjá þeim skort-
ur, skortur á trUarlífl en gnægð af spillingu og van-
trU. Hann skoraði átakanlega á þá að Utbýta riku-
lega, svo að þeir „fengju meir og rneir". Að lok-
um mælti hann: „fað er erfitt að hverfa frá ann-
ari eins samkomu og þessi er! Mjer er sem Kristur
stæði meðal yðar og liti í augu yðar. Menn og
konur! Öldungar! Ungmenni! Það er eins og
hann snUi sjer að hverjum einasta yðar á meðal,
leggi kærloiksrjka hönd á öxl yðar, líti í augu yðar,