Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Síða 28

Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Síða 28
28 um ekki hugur á því fyrir sakir sjálfs sín; hann vildi skilja við lifið án alt of mikils sársauka; það sem lífið framvegis kynni að geta veitt honum, mundi fremur vera framhald þess, er verið hafði, heldur en framför eða aukníng. Hann hafði haft yndi af því að nema og semja ritgerðir; en hann mundi ekki geta bætt nokkru verulegu nýju við það, sem hann var búinn að leysa af hendi. Hann hafði haft mesta yndi af náttúrunni, en úr því hann var nú ekki lengur fullfær til að ganga sér til skemt- unar eba taka sér smáferðir fyrir hendur, til þess að njóta náttúrufegurðar föðurlands síns, þá var horfið eitt af því skemtilegasta, sem lífið mátti veita. Og eins og hann var búinn með þetta líf, eins var hann orðinn laus við allar vonir um hið komanda líf Hann óttaðist ekki draumlausa nótt, og hann kærði sig ekki um neina tilveru eftir dauðann. Hver gat trygt honum það, að vonin um að sjá aftur ástvinina, sem hann hafði mist, yrði ekki svipleg blekking? að hinn langi skilnaður mundi ekki verða þess valdandi, að eitthvað ókunnuglegt yrði komið milli þeirra, er hér höfðu elskazt, í stað hinna mörgu viðkvæmu banda, er hér höfðu knýtt þá saman, og raskað þannig hinni fyrri samhljóðan þeirra á milli. Endurfundir þóttu honum ekki fýsilegir, nema að eins þegar svo væri ástatt, að örlagaþrunginn mis- skilningur hefði átt sér stað milli tveggja manna, og ekkj raknað úr hérna megin, einkum ef um ástir

x

Heimilisvinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.