Heimilisvinurinn - 01.06.1904, Page 48
48
um að það sje að eitis ein licilög bók frá Austur-
löndum, að eins ein bók, sem geti verið huggun á
alvörutimanum, þegar hver maður verður að fara
aleinn yflr til ósýnilega heimsins. Það er sú heilaga
bók, sem flytur boðskapinn, sem er vissulega sann-
ur og móttökuverður fyrir alla, — snertir alla,
menn, konur og börn — og ekki að eins oss, sem
kristnir erum, — að Jesús Kristur er kominn í
heiminn til að gjöra synduga menn sáluhólpna".
llclvíti cr ekki fullt. Leikritið, sem verið
var að leika í Iraquois leikhúsi í Chicago, þegar það
brann síðastliðinn vetur, var fullt af guðleysi og last-
yrðum um kristindóminn. Meðal annars var einn
leikandinn látinn segja, að hann hefði ætlað til hel-
vítis, en ekki komizt inn, af því að þar hefði verið
húsfyllir fyrir. — En svo kviknaði í leiksviðinu.
Leikhúsið brann til kaldra kola, og nálega 600
vesalings mönnum var kippt fyrirvaralaust frá þess-
um guðlausa sjónhverfingaleik inn í veruleik eilífðar-
innar. — Niður með tjaldið!
(„Missionæren “.)