Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.04.1966, Qupperneq 15

Muninn - 01.04.1966, Qupperneq 15
Páskaleyfi var gefið 5. apríl, og hófst kennsla að nýju miðvikudaginn 13. apríl. Þann dag var hringt á Sal, og sögðu þar þrír suðurfarar lrá nemendaskiptum, en þau stóðu yfir 21. til 27. marz. Karlakórinn Geysir söng fyrir nemendur á Sal finnntudagskvöldið 14. apríl undir stjórn Árna Ingimundarsonar. Aðsókn var allgóð, enda aðgangur ókeypis. Síðasta samkoma Hugins á þessum vetri var föstudaginn 22. apríl. Þar voru lesnar tvær íslenzkuritgerðir sjöttubekkinga, — þeirra Guðgeirs Ingvarssonar og Sigurmars Albertssonar. Var þetta athyglisverð nýjung í starfi félagsins, sem hefur verið óvenju gróskumikið í vetur. Dimission var laugardaginn 23. apríl. Óku sjöttubekkingar þá um bæinn og kvöddu kennara sína. Ymsum hraut þá hagl af auga. Um kvöldið var svo ágætavel heppnuð samkoma, sem 5. bekkur annaðist að vanda. Starfsemi kvikmyndaklúbbsins hefur gengið að óskum. Sýndar voru alls 7 mynd- ir fyrir dimission. Flestar voru þær eftir víðfræga leikstjóra, m. a. Sergej Eisenstein, Federico Fellini, og Carl Dreyer. Að gefnu tilefni verður ekkert sagt frá starfsemi Raunvísindadeildar að þessu sinni og lýkur hér annálum þessa vetrar. Btingsi. — Par sem skuggarnir... Framhald af blaðsíðu 115. horium. Hann gekk hægt út í skóginn, horfði á svört trén, sem nú virtust sofa, lieyrði lækjarniðinn berast á ósýnilegum vængjum utan úr húminu, og f’ann, að hann hafði eignast nýjan vin. Hann settist niður \ ið stórt tré, hallaði sér upp að því og virti fyrir sér allt þetta myrkur. — Þegar sólin varpaði fyrstu geislum sín- um yfir skóginn, sat hann enn á sama stað og brosti í svefninum. F. — Við hafið Framhald af blaðsíðu 120. Hann beygir sig fram og gengur í hring. „Af hverju ertu alltaf glottandi, þegar þú dregur?“ Köggull hafnar á baki lians og annar á öxlinni. Hann finnur til en reynir þó að halda brosinu. „Þú óskaðir okkur áframhaldandi snjóa, skepnan þín“. Nú hitta þeir í hnakkann. Marrið í vindunni hækkar sífellt. Glott sjómaður herðir gönguna í kringum vind- una. Minnsti álfurinn hrækir í átt til hans. Hópurinn lilær og losar sig við ísbirgðirn- ar. Glott heyrir ekkert og sér ekkert. Aðeins marrið. Spýtan nuddast við járnið. Snjór hefur komizt á milli, og hávaðinn er ær- andi. Álfurinn hrækir aftur. Glott sjómaður rétt skynjar álfana í gegn- um marrið. Grár sjórinn og hvítur snjór. En það er marrið, sem sker hann. Marrið. Af hverju sjá þeir hann ekki í friði? Hvað hefur liann gert? Þeir eru sífellt að erta hann. Hann heyrir marrið vaxa. Háar, óreglu- bundnar stunur, sem koma alltaf hraðar og hraðar. „Segðu okkur, hvers vegna þú ert alltaf glottandi. Af hverju gerir þú . . . “ . „Þegið þið. Látið mig í l'riði. Ég liefi aldrei gert neitt. Skiljið þið það ekki? Lof- ið mér að hafa sjóinn hérna í friði.“ Glott sjómaður veltur niður af vindu- pallinum, en hrasar í fjörunni og dettur á grúfu. Álfarnir hlaupa í burtu. Þrösturinn, sem flaug yfir hann í ætisleit áðan og vappaði í fjörunni, er liorfinn. Enginn finnur neitt. Glott sjómaður lítur upp og út yfir haf- ið. Ætli það sé ekki bezt að fara heim, hann er að verða gamall. Sig. MUNINN 123

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.