Dýravinurinn - 01.01.1893, Blaðsíða 58

Dýravinurinn - 01.01.1893, Blaðsíða 58
54 hægt var, en undir henni var alveg skinnlaust, munaði Iitlu að hann væri nugg- aður inn í bein. Undir hnakkinn hafði Jón troðið hörðum og moldugum mosa; var því kominn mosa- og moldarskán ofan á allt sárið, en gegnum þessa skán lagaði blóðið til og frá. Jón beiddist að fá að sofa í tjaldinu hjá okkur og fjekk hann það. Hann hepti því hestinn, en hesturinn vildi ekki bíta. »Vill hann ekki bíta, bölvað bestið. Jæja, hafi hann þá ekkert«, sagði eigandinn og fór að hreiðra um sig í tjaldinu. Síðan sagði hann föður mínum, að hann hefði keypt hest þenna sumarið áður uppi í sveit, þar sem hann var í kaupavinnu; hefði hann þá verið stagfeitur; en um veturinn hefði hann mest lifað á sumarholdunum; annars væri hann djeskoti liðugur í löppunum, en auðsjeð væri, að hann mundi ekki leingi »hala út« hjá sjer við sjóinn. Sló hann að lyktum upp á því við föður minn, að þeir hefðu hestakaup. Faðir minn hafði fá orð um, en það sá jeg, að honum var það fjarri skapi. Síðan sváfum við um nóttina. Morguninn eptir vaknaði jeg ekki fyrr en piltarnir voru búnir að taka hestana og lángt komnir að leggja a> Þegar jeg kom út úr tjaldinu, varð jeg fyrst verulega hissa; því faðir minn var þá búinn að kaupa Brúnskjóna af Jóni »lausamanni« fyrir allmikið verð að því, er mjer sýndist, en hafði lánað honum hest heim til okkar, er hann hafði lausan með i lestinni. Skömmu seinna lögðum við upp; gekk Skjóni laus, en Jón »lausamaður« reið hesti föður míns; en fara varð hann fetið og einga útúrkróka mátti hann fara. Um miðjan daginn skrapp faðir minn heim á bæ, sem var skamt frá veginum, og jeg með honum; urðum við þá dálítið á eptir lestinni. Jeg hafði þá orð á því við föður minn, að mig furðaði á kaupunum. J>á sagði faðir minn: «Jeg skal segja þjer, Gunna mín, hvernig þeim er háttað, kaupunum þeim arna. í gærkveldi, þegar jeg var lagstur fyrir, gat jeg ekki sofnað. Brún- skjótti hesturinn var alltaf fyrir augunum á mjer, eins og hann var útleikinn eptir hann Jón, skinhoraður með blóðugan herðakambinn og meitt bakið og blóð- stokkna froðuna út úr munni og nösum. Og alltaf hljómuðu fyrir eyrunum á mjer þessi orð: Guð er kærleikurinn, Guð er kærleikurinn, Guð er kærleikurinn. Nú vildi svo til, að mjer bættust í ferðinni peningar, sem jeg átti ekki von á. |>að var skuldin, sem jeg er leingst búinn að eiga hjá honum Gísla á Hamri. Sýslumaðurinn hafði tekið hana til greina, þegar búinu hans var skipt, og afhenti hreppstjórinn mjer peningana núna í kaupstaðnum. Jeg hafði talið peninga þessa tapaða, og fanst mjer því, að mjer væri nú bent, að nota þá til að vinna með þeim kærleiksverk og kaupa þessa aumingja skepnu úr böðulshöndum. Jeg ásetti mjer því að kaupa hestinn af honum Jóni, og eptir það sofnaði jeg; þarf jeg svo ekki að segja þjer söguna leingur«. Fleira bar nú ekki til tíðinda í kaupstaðar- ferðinni«. »Er sagan þá búin?« spurði eitthvert barnanna. »Nei«, sagði gamla konan; »mergurinn er enn þá eptir«. »Blessuð, haltu þá áfram, amma mín, svo þú verðir búin áður en ljósið kemur«, sagði elzti drengurinn. »Já, hann átti talsvert eptir, hann Skjóna tetur, blessuð skepnan«, sagði kerling. »Faðir minn ljet hann nú standa brúkunarlausan að mestu í tvö sumur, en kappól hann á vet- urna; varð hann því öll önnur skepna, þroskaðist og safnaði kröptum. Fór svo á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.