Dýravinurinn - 01.01.1893, Blaðsíða 62

Dýravinurinn - 01.01.1893, Blaðsíða 62
58 |>eir vilja ekki selja þá fyrir það, þó að enda miljónir sjeu í boði. feim finst, ef þeir selji hestinn sinn, þá selji þeir líka lífið úr brjósti sjer. Ef vjer athugum nú vel, hverju þetta kærleikssamband milli manna og dýra megnar að koma fram, þá megum vjer íslendingar skammast okkar í meira lagi fyrir hestameðferðina okkar; hún er hörmuleg, enda er kynið eptir því hjer hjá okkur, og er þó hreinasta furða hve margir verulega góðir gæðíngar eru til hjer á landi. þ>að er þó ekki sjerlega ástúðleg meðferð sem vjer höfum á hestunum okkar — láta þá gánga á gaddinum meðan fært er, og stundum góðan tíma leingur, — láta þá standa samanbundna í hlöðum eða kaupstaðargötum, stundum heila daga, halda á þeim ósvífnar dagleiðir, hungruðum og þyrstum, sumstaðar með taumana í töglunum, þetta er ekki sjerlega efnilegt fyrir ’kynið, enda er það í mörgu eptir því. Of fá dæmi eru til þesss hjer á landi, að reglu- leg vinátta hafi skapast á milli manns og hests. J>að er sjálfsagt lang alkunnastar og alltíðastar sögur um þetta óeigin- gjarna kærleikslíf, sem myndast getur á milli manna og hunda; smalinn og hund- urinn hans eru opt hjerumbil óaðskiljanlegir vinir. það tekur þýí ekki að fara lángt út í þá sálma. þ>að er svo alkunngt, að minsta kosti kaupendum Dýravinarins, að við það þarf eingu að bæta; enda þó að jeg bætti svo sem tveim eða þrem hundasögum við, væri það að bera í bakkafullan lækinn. En það er annað sem jeg vildi benda á. Vjer komumst ekki af án hundanna — og hundlaust heimili er í raun og veru einhvern veginn dauft; það er eins og vanti einhvern góðan vin á heimilið; hundsaugunum er við brugðið fyrir trúmensku þá og dygð, sem úr þeim skín. Og satt er það, að mörg mannsaugun eru leiðinlegri og hrekkjalegri en hundsaugun. En nú hafa bæði löggjöf og læknar gert sitt til af sömu orsök að gera hundana óþokkaða á heimilum manna; þeim er kent um einn hinn kvalafylsta og þyngsta kvilla á mönnum og skepnum: Sullaveikina, og það eru líka full rök til þess. Enn það er mönnunum að kenna; það þarf ekki fremur að ala bendilormana í hundunum en lús eða annan óþverra á sjálfum sjer; það er hægt að hreinsa af sjer óþverrann með hreinlæti, og það má hreinsa hund- inn með litlum tilkostnaði og pössunarsemi sem ekki kostar neitt, að grafa niður sulli og sollna parta úr kindum, svo að hundar nái ekki í það; þá mundi það bráðum á sannast, að hundurinn yrði eingin hættuskepna, og ekki þyrfti að varast hann. þ>að væri lika jafngott að hafa þá færri, og venja þá betur en víða er gert. J>að mundi bæta kyn þeirra, og auka verð þeirra fram úr því sem er. þ>að hefur aldrei verið gert mikið úr kærleikanum hennar kisu, en þó er það víst, að hundstrygð getur líka í henni búið. Kisa, sem fór að veiða mýsnar handa barninu i vöggunni, hefur auðsjáanlega ætlað að gera því vel til með því að færa því þessa krás. Hún gat ekki betur gjört. J>að er annars hreinasta furða, hvað kettir geta verið góðir við börn, því að ekki er meðferðin altjend góð hjá því fólki; kettir sækjast opt eptir að liggja hjá ungbörnunum í vöggu eða rúmi, og sjeð hefi jeg kött vefja sig utan um hálfklætt úngbarn, sem jeg átti, og reyna til þess að breiða sig utan um það sem bezt; hún breiddi sig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.