Dýravinurinn - 01.01.1916, Side 72

Dýravinurinn - 01.01.1916, Side 72
bS sýslu. Haustiö 1913 var haldin hrútasýning í Svartárdal, og átti hrútsi aö verða á sýningunni. Piltar, sem ætluðu aö sækja hann upp í heiði, komu honum ekki spor. Var þá farið aö tala um á sýningunni, að svona fé væri óeigandi, sem ekki gæti gengið. Eg hafði keypt hrútinn að norðan, og vildi ógjarnan að það orð kæmist á, að liann gæti ekki gengið. Fékk ég því léttvígan hcst og sótti hrúlsa. Var það aðeins kergja sem að honum gekk, sem mig grunaði. Tók ég í hornið á honum og gekk hann hiklausl við liliðina á mér, en hestur minn við hina liliðina. Á leiðinni að sýningar- staðnum var yfir Svartá að fara og var hún töluvert djúp. Pegar þar kom, knýtli ég pískólinni lauslega um hornin á hrútsa ogsettistupp í hnakkinn. Ilrútsi sá, hvað verða vildi og gekk hiklaust út í. En það gekk miklu ver að koma öðrum lirútum yfir ána. Hrútsi þótti fallegur þegar á sýninguna kom, hann fékk þar fyrstu verðlaun. Undan honum hafa komið mjög fallegar kindur. Ilann er að brjóstmáli 110 cm. Jón 11. Porbergssou. Á Porra. Ilarðnar nú á hciðunum, liálsar klæðast fönnunum, lieggur ekki á hnjótunum, hálum upp úr svellunum. Tálgast liold af lirossunum, liama þau í rokunum, kjarki, fjöri, kröftunum, kopar mest í göddunum. Ilafðu inni í húsunum, liesta þina í byljunum miðlaðu þeim moðunum, mylsnu, salla og heyjunum. Gefðu ungum gæðingum græna tuggu á morgnunum, launa þeir með létlfærum, lipru, stcrku fótunum. Fljúga nú úr fjöllunum, llokkarnir af rjúpunum, leita skjóls í skógunum, skamtinn fá af kvislunum. Brjóttu’ ei frið á fuglunum, frjálst sé þcim í dölunum, bentu ckki byssunum beint á móti lögunum. Taktu eftir litlingum, trítla þeir á klakanum, metla þá af molunum, maður, af ríku borðunum Bjóddu litlu börnunum brauð þeiin gefa úr Iófunum, kveiklur neisti af kærleiknum, komi fram á smælingjum. Póknast hæða herranum, hlynt sé vel að dýrunum, hans eru þau frá höndunum, hrósa undra verkunum.

x

Dýravinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.