Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1950, Blaðsíða 30

Heimilisblaðið - 01.03.1950, Blaðsíða 30
66 HEIMILISBLAÐIÐ bili særði ég félaga hans á handlegg í amiað sinn, svo að hann varð að hætta sókninni. Aðstæðurnar höfðu nú skyndilega breytzt. Maðurinn með grím- una skjögraði á fætur og fálmaði eftir skanmibyssu sinni. Hann fann hana samt ekki, enda mundi hann lítil not hafa getað haft af henni, þótt hann hefði fundið hana. Hann skjögraði því hjálparvana upp að jarðfallinu, og hallaði sér upp að því. Maðurinn, sem ég hafði sært í handlegginn, var litlu betur á sig kominn. Hann gaf upp alla vörn fyrir mér, missti að svo búnu kjarkinn, fleygði sverði sínu og þeysti burtu á hesti sín- um. Þá var aðeins einn mannanna eftir, sá, sem átti í höggi við fylgdarmann minn, og sneri ég mér nú til þeirra. Þeir höfðu staðnæmzt í svip til að kasta mæðinni, og hljóp ég af stað til þeirra. En þegar þorparinn sá til ferða minna, sneri hann hesti sínum tafarlaust undan og var að vörmu spori horfinn inn í skóginn, svo að við höfðum unnið frækilegan sigur. Það fyrsta, sem ég gerði, — ég minnist þess með ánægju enn þann dag í dag — var að stinga hendinni í vasa minn, taka þaðan helminginn af peningum þeim, sem ég átti eftir, og fá þá í hendur manninum, sem hafði barizt svo liraustlega fyrir mig, enda þótt hann væri tregur til að taka við þeim. Ég var svo glaður, að ég liefði getað kysst hann! Ávinningur minn var ekki aðeins sá, að ég hafði sloppið úr dauðans greipum fyrir vopnfimi hans, lieldur fann ég og vissi, að viðureignin hafði á vissan hátt hækkað mig í áliti, og mér fannst óneitan- lega mjög mikið til um það. Maðurinn hafði fengið tvö sár, og ég liafði lilotið eina eða tvær smáskeinur, auk þess sem ég liafði misst hest minn, en liinn fylgdarmaöurinn var steindauður. En ef ég á að segja allan sannleikann, þá hefði ég feginn út- hellt helmingnum af blóði mínu fyrir tilfinningu þá, sem ég var gagntekinn, er ég sneri aftur til móts við herra de Coche- forét og systur hans. Ungfrúin hafði stigið af baki og sneri' sér undan. Hún liafði tekið af sér grímu sína og reyndi ekki að leyna því, að hún grét. Bróðir hennar, sem ekki hafði vikið frá vaðinu á læknum, allt frá því að bardaginn liófst, lyfti augna- brúnum sínum er hann leit á mig, og brosti einkennilega. — Þarna sjáið þér, herra de Berault, sagði hann fjörlega, liversu vel ég held orð mín. Hér er ég enn, og það er meira en hægt er að segja um mennina tvo, sem voru að þeysa héðan brott. — Já, svaraði ég með nokkurri beizkju. Ég vildi, að þeir hefðu ekki orðið fylgdarmanni mínum að bana. Hami yppti öxlum. — Þetta voru vinir mínir, sagði hann. Þér getið ekki vænzt þess, að ég liggi þeim á hálsi fyrir það. En það er ekki allt og sumt, herra de Berault. — Nei, sagði ég, og þurrkaði af sverði mínu. Maðurinn með grímuna er enn eftir. Ég var í þann veginn að leggja af stað til hans. magn til þess að standast straum ai þessu margbrotna starfi? Já, það get ég sagt: Sjötíu og fj0®' ur prósent af tekjum skólans eru sain- skotafé, er hinir mörgu vinir hanf hafa gefið af fúsum vilja, og ken>UI mestur hluti þess í smáupphteðiin' — frá einum upp i tíu dollara. Trúuðu vinir, sem lesið þetta, ',r um samtaka um að biðja fyrir þ°sS' um andlega vita, er sendir sk*ra ijósgeisla út í hina dimmu, syndug11 nótt, svo að sem flestum takist að 11,1 landi í höfn friöarins. Einsetumaðurinn Framh. af bls. 51. að hún áttaði sig. En þá lieyrú* liún fótatak rétt lijá sér. — Gott kvöld, var sagt. Hún leit til hliðar og heih aði. Þetta var einsetumaðuriii11- — Eruð þér hér ein um h® nótt? spurði hann. Já, ég gleymdi svipu hérU*1 skammt frá í gær og mér fanr>si ég mega til að sækja hana, eH svo get ég ekki ratað lieU11 aftur. — Ég skal fylgja yður, sag^1 Birgir. Ég er eins og náttugh1’ ég rata hér um allt þó skugg sýnt sé. — Ég þakka yður fyrir, sagðj Ásta. Þau gengu í áttina a Bergi. — Ég veit ekki, hvernig e? hefði ratað heim, ef ég hefði ekki hitt yður, sagði Ásta, ee liefði villzt. Guð hefur látið V® ur verða á vegi mínum. — Já, eða yður á vegi 111111 um, sagði liann, en hann sag1 það svo lágt, að hún he>r3j ekki til hans. Þér eruð trúu' stúlka, er það ekki? — Jú, svaraði Ásta.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.