Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 13

Heimilisblaðið - 01.07.1964, Blaðsíða 13
..Skammaðist þín? Fyrir hvað? Við hvað v&rstu hræddur?" ..Þetta varðandi fangelsið, auðvitað.“ Hún virti hann gaumgæfilega fyrir sér. að var sektarsvipur á andliti hans. Ör- itili vonarneisti tendraðist innra með enni. Kannski hafði Hugh verið einhvern lrnn í fangelsi — fyrir einhverja smá- muni, og þá var það ef til vill það, sem sPákonan hafði átt við. Hún hélt niðri í Ser andanum. ..Hugh, elsku Hugh, segðu mér það. Hef- urðu gert eitthvað rangt?“ ..Eitthvað rangt?“ Hann leit á hana undrandi og rannsakandi í senn. „E—ekki Pað ég veit. Því spyrðu?“ ,,Ur því þú hefur verið í fangelsi." Hann brosti beiskjulega. „Ég er í fang- e si á hverjum einasta degi. Og það er lítil- fjörleg atvinna, Evelyn mín, en ég fæ áreiðanlega eitthvað betra síðar. Ég hef von um að komast að á skrifstofunni. Ef þú getur beðið eftir því í stuttan tíma .. .“ Hún tók í handlegg hans. „Hvað ertu að segja? Hvað meinarðu? Hvað er það eiginlega, sem þú hefur fyrir atvinnu?" „Nú, ég hélt þú vissir það. Ég er eftir- litsmaður — í Brixtonfangelsinu . . .“ Hún varð hokin í sætinu og sem full- komlega lömuð. Höfuð hennar hallaðist að öxl hans. „Evelyn!“ stundi hann. „Tekurðu þér þetta svona nærri? Geturðu þá alls ekki sætt þig við það?“ „Sætt mig við það, Hugh?“ hvíslaði hún. „Ef þú bara vissir, hvað ég er hamingju- söm!“ Þessi baðföt eru nú í móð á baðströndum Plóridaskagans og eru kölluð þríkini, af þvr þau samanstanda af þrem hlutum (naflastykkið). > < New York borg sendi þessa ungu og fallegu stúlku til Par- ísar sem sendiherra heimssýn- ingarinnar. Hún er 25 ára og heitir Ann Mac Keon. MiLISBLAÐIÐ 145

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.