Heimilisblaðið - 01.01.1965, Qupperneq 23
Þessi unga stúlka, ungfrú
Tashi Dorij, var fulltrúi lands
síns, Bhutan, á ráðstefnu, sem
Asíuríki héldu í London.
Þetta er ungfrú Jamaica. Hún
heitir Enica Cooko. Hún tekur
þátt í samkeppninni um titil-
inn „Ungfrú Heimur“, sem háð
verður í London. Ef dæma má
eftir fríðleika, ætti hún að
hafa mikla möguleika að
vinna verðlaunin, sem verða
2.500 sterlingspund.
Aliza Gurhar er fyrrverandi
fegurðardrottning ísraels og
hefur líka gegnt herþjónustu
í israelska hernum. Eiginlega
ætlaði hún að gerast stjórn-
málamaður, en komst að
þeirri niðurstöðu, að hún væri
betur fallin til að leika í kvik-
myndum og sjónvarpi. Henni
þykir gaman að mála og not-
ar frístundir sínar til að mála
sjálfsmyndir.
Móðir þessarar stúlku hefur
hundabú í Englandi og þegar
dýrmætir hvolpar eru sendir
til viðskiptamanna, eru þeir
sendir i húrum úr gervigleri.
Hér á myndinni er litla stúlk-
an með ckihuahua-hvolpa,
sem á að senda með flugvél
frá London til írlands.
Hin fræga kvikmyndaleikkona
Audrey Hepburn og sonur
hennar komu fyrir skömmu
til flugstöðvarinnar í Róm,
Fiumecino, þar sem eiginmað-
urinn, Mel Ferrer, tók á móti
þeim. Hann leikur um þessar
mundir aðalhlutverkið í kvik-
myndinni „E1 Greco“. Hún er
tekin í Róm.
Það er ekki vandalaust að eta
spaghetti. Þessi unga stúlka
er amerísk og er sýningar-
stúlka í París. Hún vann ný-
lega sigur í keppni spaghetti-
neytenda. Dómnefnd var skip-
uð leikhúsa- og kvikmynda-
fólki í París.
4-