Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 33

Heimilisblaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 33
hennar fram í fyrir henni án allrar tillits- semi. „Hvað hefurðu grætt á þessum upp- steyt, sem þú gerðir? Ekkert annað en það, að þú hefur gert sjálfa þig að athlægi — og komið vini þínum Alek til að trú- lofast Margie.“ ,,En hann er alls ekkert trúlofaður henni. Það getur hann bara ekki verið,“ mótmælti hún aumlega. „Hann fer aldrei að giftast kvenmanni eins og henni.“ „Þú gerðir vel, ef þú héldir þér saman,“ svaraði hann gramur. „Það er ekkert sem ég sjálfur vildi gera eins og það að giftast Margie.“ Hann gnísti tönnum. „Ég — ég gæti kálað þér fyrir það, sem þú hefur gert í kvöld!“ XVII. ELSKARÐU HANN? Það var liðið nær morgni áður en Alek fylgdi Margie heim. Hann hafði brosað til hennar og sagt: „Við erum ekkert að flýta okkur heim. Við verðum kyrr og þraukum. Finnst yður það svo fráleitt?" „Já, á vissan hátt.“ En sjálfri var henni ljóst, að henni fannst það alls ekki frá- leitt. „Það er kannski nokkuð erfitt," viður- kenndi hann. „En ættum við ekki að reyna að gleyma þessari leiðinlegu trúlofun okk- ar og láta sem við séum hér til þess eins að skammta okkur? Brostu, Margie! Ég vil bara láta þig vita, að þú ert fallegasta stúlkan í salnum —“ Hann var allt í einu farinn að þúa hana. „Og ég vil mega segja þér, að ég hef mikið hugsað um þig þenna tíma, sem ég hef verið í burtu frá þér. Ég man nóttina, sem við keyrðum heim undir dögun, og þú leyfðir mér að kyssa Þig.“ „Hættu, Alek!“ sagði hún biðjandi. „Er nokkuð athugavert við einn koss?“ Hann hló við blíðlega. „Ég fer að halda, að þú sért dálítið siðavönd.“ „Og þér finnst það athugavert, að ung- ar stúlkur séu siðavandar?" „Auðvitað finnst mér það. Það finnst öllum karlmönnum. Siðavandar stúlkur eru komnar úr tízku, rétt eins og bak- púðar og hnjáskjól. Ég kýs konur, sem veita koss án bakpoka og af frjálsum vilja, og halda ekki að þær hafi keypt sál manns- ins, þótt þær leyfi honum að kyssa sig. Ég kýs konur, sem geta elskað án þess að gráta-eða hallast að rómantík, sem er löngu dauð. Ertu mjög hneyksluð á mér?“ spurði hann. Hún svaraði, en nokkuð stirðlega: „Ég reyna að minnsta kosti að vera það ekki. En það eru sem sagt þannig konur, sem þér geðjast að?“ furðulega. Jæja, svo það voru þannig kon- ur, sem hann kaus, hugsaði hún með sér; konur, sem eru mjög frjálsar í ástum og án skilyrða. Skyldi honum þá ekki finn- ast hún vera nokkuð tepruleg? Og var þá það, sem hún dáði, aðeins gamaldags og heimskulegt? Ef svo var, hvernig átti hún þá að fara að því að skipta um skoðun — og tilfinningu? Hún fullvissaði sjálfa sig um, að hún vildi um hvorugt skipta. Samt sem áður var hún skyndilega gripin ótta, er hún leit í dulan svip hans í rökkri dans- salarins. Eftir dansleikinn keyrði Alek Margie heim. Hún var hálf-ringluð og ekki fær um að hugsa skýrt. Hún vissi það eitt, að hún sat við hlið hans í myrkrinu, fann öxl hans uppi við öxl sína í hvert sinn sem vagninn tók beygju. Hvorugt þeirra sagði orð. Vagninn nam staðar fyrir utan heimili hennar. Það var aðeins Ijós í herbergi Nor- mans læknis. Alek sneri sér að henni og lagði handlegginn teprulaust yfir herðar henni. „Hvað gerir maður núna?“ sagði hann og brosti dauft. „Ég hélt ég vissi, hvernig maður ætti að haga sér í flestum þeim kringumstæðum, sem lífið færir manni, en ég verð að viðurkenna, að í þetta skipti bregst mér bogalistin. Hvað heldur þú sjálf — kyssir maður stúlku eða kyssir maður hana ekki undir kringum- stæðum sem þessum?“ „Maður kyssir hana ekki“. Fmmhald HEIMILISBLAÐIÐ 253

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.