Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1968, Qupperneq 24

Heimilisblaðið - 01.07.1968, Qupperneq 24
greinilegar, að ekki væri liægt að rugla þeim bræðrum saman á þann hátt. Þannig hlaut það í rauninni að vera. Ann- ars hefði Andrew ekki haft neina ástæðu til að segja rangt til nafns. Enga ástæðu aðra en þá, að hann var kvæntur maður ... Hann var kvæntur Catherine, en — Ungfrú Arden lagði höndina á handlegg hans. „Ég veit ekki hvers vegna við stönd- um svona,“ sagði hún. „Nei, það veit ég heldur ekki,“ svaraði Ninian. „Hvernig viljið þér sitja, — í átt- ina sem lestin fer, eða ...“ „Mér er alveg sama,“ sagði hún. Svo sett- ust þau livort andspænis öðru. „Þetta er mjög merkilegt, finnst yður ekki — hvernig við hittumst, meina ég,“ sagði Ninian Hann varð að komast til botns í þessu á einn eða annan hátt. „Ég þykist vita, að þér hafið verið í samkvæmi nýlega ? Hjá ... hjá ...“ Hann gat ekki munað nafn húsráð- anda og þagnaði hikandi. Andrew hafði þó sagt honum það. Það var eitthvert útlent nafn. Pranskt, Duclos ellegar Dupont. Alla- vega Paul. „1 samlrvæminu hjá Paul,“ sagði hann og leit á stúlkuna fyrir framan sig. Hún var óneitanlega mjög falleg. „Pauline Delage,“ svaraði ungfrú Arden. Hún hrukkaði brýnnar. „Ég bjó hjá henni. Eins og ég sagði yður, þá var ég nýkomin frá Frakklandi. En þér ... þér virtust ekki vera neitt drukkinn í veizlunni. Ég á við, að ef þér voruð það, þá var að minnsta kosti ekki hægt að sjá það. Það er ekki beinlínis til hróss fyrir mig, að þér virðist ekki muna eftir mér. En kannski viljið þér ekkert muna. Eða voruð þér máski drukkinn?" Hann hristi höfuðið. „Ekki held ég það.“ Hamingjan góða, þetta var hræðilegt. í hverju hafði Andrew eiginlega lent? „Ég sá yður úti á brautarpallinum,“ sagði stúlkan og roðnaði „Ef ég .... Ef þér viljið að ég setjist í einhvern annan klefa ... þér viljið kannski vera einn ... þá skuluð þér bara segja það!“ „Nei, alls ekki,“ svaraði Ninian ákveðinn. „Fyrir alla muni, sitjið kyrr, ungfrú Arden!“ Hún lyfti brúnum og roðnaði enn meir. „Þér munið nafnið mitt?“ „Ég — já, ég sá það á,“ — hann leit hálf- skömmustulega á merkisspjald farangursins. — „Já, það gerði ég,“ bætti hann við af skyndingu. „Á þetta að vera fyndið ? Því að ef svo er, þá get ég ekki sagt, að mér finnist það neitt fyndið, Ninian. Ég á við, að ef þér hafið verið svona drukkinn og hafið gleymt öllu af þeim sökum, eða ef það stafar af þeim erfiðleikum sem þér hafið gegnumgengizt, þá skal ég reyna að skilja þetta allt. En ef þér nú munið nafnið mitt ...“ „Ég ... ja, ég mundi það ekki. Ég sá það standa á farangrinum.“ Iíann benti á merki- spjaldið. „Hausinn á mér er alveg tómur. Ég gleymi yfirleitt öllu. Reynið að fyrirgefa mér, ef það er ekki til of mikils mælzt.‘ ‘ Hann hallaðist fram á við, og nú tók lestin kipp> sem kom honum næstum til að falla í fangið á henni. Hún rétti fram hendurnar til að taka af honum fallið. Hún beit á vörina og horfði á hann. „Þér kysstuð mig. Munið þér ... Munið þér það í raun og veru alls ekki?“ Ninian varð æfareiður. Honum fannst eins og verið væri að kyrkja sig. Andrew hafði löngum verið upp á kvenhöndina, en nú var hann kvæntur Cathrine! Auminginn sá arna! Að líkindum hafði hann drukkið einum of mikið og síðan farið að dufla við stúlkuna þá arna, kysst hana og haft gaman af, án þess að láta sér koma til hugar, að þau ættu eftir að hittast aftur. En með einhverju móti hafði hann komizt að því, að hún ætlaði til Lorne, og þá hafði hann — eins og í gamla daga — gefið upp nafnið Ninian í stað síns eigins, þannig að Cathrine þyrfti ekki að komast að þessu. Að líkindum hafði hann ætlað sér að segja Ninian frá þessu öllu, en síðan gleymt þvi- Ellegar hann hafði viljandi látið það vera, í von um að það yrði um alla eilífð óþarfi- Það var líka tilviljun ein, að Ninian hafði hitt stiilkuna í lestinni. Ekki var liðinn klukkutími frá því hann vissi, hvort sér myndi takast að ná í þessa lest. Andrew hafði að sjálfsögðu aldrei grunað, að syndir hanS myndu komast upp svo skyndilega. En ekki vissi Ninian hvernig hann hafði hugsað sér að komast undan því, að ungfrú Arden hitb þá bræður báða fyrr eða síðar. Allt í einu spurði hann: „Yorum við ann- ars nokkurn tíma kynnt í samkvæminu, ung' frú Arden?“ HEIMILISBLAÐl5 156

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.