Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1968, Page 30

Heimilisblaðið - 01.07.1968, Page 30
annað meðan á máltíðinni stóð3 og í hvert sinn sem hann leit upp sá hann samúðina í augum hennar, enda Jpótt hún gerði sér far um að leyna henni og lialda uppi skemmti- legum samræðum við Jill. Loksins er hann sat einsamall með henni í bílnum á leiðinni til Guise sagði hann óþol- inmóður: „Iívað er það, Joss? Eru það — slæmar fréttir f‘ Svipur Joeelyn stirðnaði, og hann vissi, að það boðaði ekki gott. „Já? Hvað er það?“ endurtók hann. „Það er varðandi Cathrine,“ svaraði Joce- lyn og leit fram á veginn sem hlykkjaðist fyrir framan þau. „Eg vildi ekki segja það svo Jill heyrði til, en — Cathrine er farin að heiman, Nin. Hún fór frá Guise — í gær- kvöldi.“ 3. KAFLI „Cathrine ... farin frá Guise?“ Spurning- in kom frá Ninian eins og undrandi bergmál. Honum varð svo um þetta, að hann gat varla orði upp komið. Hann starði á ávalan and- litssvip Jocelyn, og enn sá hann hregða fyrir samúðinni í augum hennar, auk þess sem málrómurinn bar vott um hana svo að ekki varð um villzt. Jocelyn kinkaði kolli til samþykkis. „Eg er hrædd um að hún sé farin, Nin. Eg veit reyndar ekki mikið — amma þín sagði mér engin smáatriði í símanum. Hún sagði bara að Cathrine hefði farið að heiman, og að hún hefði skilið eftir bréf — síðan farið.“ „En hvert?“ spurði Ninian. „Hvert fór hún?“ „Elsku Nin, það veit ég ekki. Amma þín gat ekkert um það. Hún hafði tekið bílinn — hún á lítinn Fordvagn, sem Andrew gaf henni í jólagjöf — og farið skömmu eftir kvöldmat. Ég þykist vita, að hún hafi farið heim til sín.“ „Einmitt,“ sagði Ninian dapurlega. Joee- l.yn var fornvinur hans, en samt sem áður fékk hann sig ekki til að spyprja hana að því hvort hún áliti að það væri vegna aftur- komu mágs síns sem Cathrine hafði farið að heiman. Því að jafnvel þótt Jocelyn hefði einhverja skoðun á þeim hlut, þá var ólíkt henni að láta slíkt í ljós. En hvaða aðra ástæðu hefði Cathrine getað haft? Ef And- rew var ekki ... „En Andrew,“ sagði hann og hugsaði vand- lega hvert orð. „Yeiztu hvar Andrew er niður kominn?“ Jocelyn dró úr ferðinni og svaraði ekki strax. Hún einbeitti sér að akstrinum. A<5 lokum svaraði liún blælaust: „Ég býst við því að Andrew sé heima. Það var samkvæffli í Ruach Lodge í gær. Ég held þeir hafi verið saman á veiðum í gær, Andrew og Munro- arnir, og síðan farið í gleðskapinn á eftir; John minn líka. En samkvæminu lauk ekki fyrr en um þrjúleytið; þú veizt hvernig það er, þegar Munroarnir skemmta sér! Ég býst varla við því, að Andrew vakni til lífsins aftur fyr en komið verður langt fram á dag- Amma þín sagði mér, að hún hefði ekki sagt honum neitt um það, sem gerzt hefði. Els- peth fann bréfið sem Cathrine hafði skilið eftir, og hún afhenti ömrnu þinni það uö1 leið og hún bjó um rúmin í gærkvöldi.“ „Öldungis.“ Ninian fann ekkert annað orð yfir öll þessi tíðindi. En honum var mikið niðri fyrir, og líðan hans var svippuð líðau hans í lestinni, þegar honum fannst verið að kyrkja sig. Þetta var ömmu hans líkt, hugsaði hann, og reyndi að bæla niður breiskjuna. Enginn mátti láta Andrew vita neitt, af því að hann var í samkvæmi,- og það mátti ekki eyðileggja ánægjuna fyrir honuiu- Hann varð sömuleiðis að fá að sofa í friði- Enda þótt hann liefði átt að sjá, að Cath' rine var ekki viðlátin, þegar hann kom lieiu1 og háttaði í tómt rúmið. Eða höfðu þau ef til vill sitt hvort svefnherbergið ? Ekki gat hann lieldur spurt Jocelyn uiu slíkt. Vildi það heldur ekki í rauninni. Það ríkti þögn á milli þeirra. LeiðinFí og vandræðaleg þögn, sem Ninian langaði til að rjúfa, en gat ekki. Til þess að dylja vand' ræðin jók Jocelyn hraðann. Svo komu þal1 að síðustu beygjunni, og þarna blasti GuisO' óðal við þeim, grá bygging og háreist, svo undursamlega kær. — Turnirnir stóðu seU1 skuggamyndir andspænis liæðunum fyrir liandan, og dauf morgunsólin gljáði á fjöld*1 smárra glerrúðna. Ninian var andstuttur, en samt var andaf' dráttur hans óreglulegur. — Óðalið að tarna leit út eins og það hafði gert í 400 ár eins konar virki hér inn á milli fjallanna, ekk1 H E IM IL I S B L A Ð 15 162

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.