Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1968, Side 34

Heimilisblaðið - 01.07.1968, Side 34
Við. sem vinnum eldhússtörfin Heimatilbúinn ís er bezti sumarábætirinn. Að vísu er sumri tekið að balla, en ég geri ráð fyrir að flestir hafi lyst á góðum ís eftir sunnudagssteikina. Hér eru nokkur atriði, sem gott er að vita til að ísinn heppnist vel. Kæliskápinn á að stilla á mesta kulda tveim klukkutímum áður en ísinn er búinn til. Ann- ars verður ísinn kornóttur. Kjóminn má alls ekld vera stífþeyttur. Stíf- þeyttar eggjahvítur og matarlím bæta útlit íssins. Með því að hræra varlega í ísnum eft- ir fyrsta hálftímann og heila tímann, kemur maður í veg fyrir að ávextir, egg eða mjólk sökkvi til botns og frjósi sem leiðinlegt botn- lag. Það er að mestu leyti undir ísskápnum komið og að nokkru leiti hvað í honum er, hvað lengi liann er að frjósa. 2—6 klst. er algengast. Sítrónuís: 2 dl sykur 1 dl vatn 1 blað af matarlími (sem hefur verið lagt í bleyti) 1 dl sítrónusafi 2 stífþeyttar eggjabvítur rifið hýði af sítrónu % 1 rjómi Sjóðið sykur og vatn saman í nokkrar mín- útur. Bætið matarlími og sítrónusafa út í. Kælið. Látið hvíturnar varlega út í kaldan massann, bætið sítrónuberkinum og þeytta rjómanum í. Frystið í 4—5 tíma og fram- reiðið í sítrónunum. V anillurjómaís. 3 eggjarauður 5 msk sykur 1 matarlímsblað (brætt) 2 tsk vanillusykur 2 stxfþeyttar eggjahvítur 2 dl stífþeyttur rjómi Iírærið eggjarauðurnar hvítar ásamt sykr- inum. Bætið matarlími og vanillusykri út í, því næst hvítunum og rjómanum. Hellið ísn- um í einn eða fleiri forma, sem eru smurðir með olíu. Látið aluminíumblað yfir og látið ísinn í frystihólfið. Frystið í 3—4 tíma. Til bragðbætis má láta út í massann áður en hann er frystur: saxað súkkulaði, fínt söxuð coektailber eða smátt skorna ávexti. Mokkaís: 50 gr súkkulaði 1 bolli sterkt kaffi 2 tsk vanillusykur M 1 stífþeyttur rjómi 1—2 msk sykur Bræðið súkkulaðið í kaffinu, bætið van- illusykri út í. Hellið blöndunni í form og hálffrystið. Látið þá þeyttan rjóma út í og bætið sykur út í eftir smekk, og frystið aft- ur. Hrærið í ísnum hálftíma eftir að han» hefur verið settur inn og síðan klst. eftir. Karamelluís: 1 dl sykur 2 dl sjóðandi mjólk 1 blað af matarlími (bræddu) 2 eggjarauður 2 msk sykur 2 stífþeyttar eggjalivítur 3/i 1 rjómi Bræðið sykurinn í þykkbotnuðum potti þangað til hann er orðinn ljósbrúnn, hellið mjólkinni út í, látið það sjóða saman, takið af eldinum og bætið matarlíminu út í. Þeytið eggjarauður, sykur og vanillusykur saman °g þeytið út í karamellumassann. ICæli® blönduna. Látið þeyttan rjóma og þeyttaf hvítur varlega út í kaldan karamellumassanu- Látið þetta í olíusmurð form og frystiö’ Hrærið í þessu eftir fyrsta liálftímann og heila tímann. 'Tarðáberjaís: % kg jarðarber (1 dós jarðarber) % dl sykur 1 stífþeytt eggjahvíta 1 matarlímsblað (brætt) kí 1 þeyttur rjómi Merjið jarðarberin og þeytið þau samao við sykurinn, látið þeyttar hvíturnar og matarlímið út í. Frystið massann hálfstífaöi látið þeyttan rjómann út í og frystið ísiM1 í olíusmurðum formum. Skreytið með jarð' arberjum. Frystið í ca 3 klst. 166 HEIMILISBLAÐl®

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.