Heimilisblaðið - 01.05.1977, Blaðsíða 36
„Sjáðu, ég hef fundið lítið fræ, sem ég ætla að
setja í jurtapott og sjá hvað kemur upp af því!“ segir
Palli. Kalli finnur jurtapott og þeir setja fræið í mold
og vökva síðan vel. Um kvöldið fara þeir í rúmið og
sofa vært um nóttina. Um morguninn, þegar þeir
fara að huga að fræinu er það orðið að stóru pálma-
tré, sem hefur vaxið upp úr þakinu á húsinu. Bezt
er að fara með gát að því að sá fræi í jurtapotta
nema að vita, hvað upp af því sprettur.
,,Það er vist langt síðan þið hafið fengið ærlegt
bað!“ segir úlfurinn hlæjandi. Hann tók Kalla og
Palla í hrammana og gekk með þá niöur að sjónum
og henti þeim á hausinn í sjóinn. Aumingja bangs-
arnir. Þeir sökkva með það sama til botns. En á botn-
inum finna þeir gamla kistu, sem þeir taka með sér
upp. Og meðan dýrin, sem eru komin niður á strönd'
ina til að hjálpa þeim, standa og horfa á, opna þei'
kistuna, og sjá ... hún er full af peningum! Kal"
og Palli eru allt í einu orðnir ríkir. Og úlfurinn sitúr
á bak við runna sárgramur.