Jólabók Bjarma - 24.12.1912, Síða 8
8
heima í minni sveit væri það lalið
ókristilegt að spila á jólanóttina?
Það er ekki þar l'yrir, fólkið hérna
í bænunr er einstaklega kyrkjurækið
um jólin, en eg hefi enga ánægju af
að hlusta á skrækina í stelpunum né
bölvið i strákunum, þegar verið er
að troðast inn i kyrkjuna; og því hét
eg, er eg loks komst inn i kyrkjuna
við kvöldsönginn á aðfangadagskvöld-
ið, að langt skyldi verða til þess að
eg hælti mér aftur í aðra eins þvögu.
Þá var munur að fara til kyrkju
um jólin heima, þótt leiðin væri lengri
og færðin lakari stundum.
Hér er, held eg, hvergi farið með
gott orð i heimahúsum um jólin,
fólkið ýmist sefur eða etur og drekk-
ur á daginn, en vakir allar nælur við
skemtanir. Og eg hefi orðið að her-
ast ineð straumnum, og því ekki get-
að lesið neitt að ráði í bókunum,
sem alt af eru beztu vinir mínir síð-
an eg fór að heiman.
Eitt kvöldið var eg þó laus við ó-
næði og las allmikið um frelsisslríð
Niðurlendinga. Sambýlismaður minn
kom ekki lieim fyr en eftir miðnætti,