Jólabók Bjarma - 24.12.1912, Blaðsíða 81
segja honura? Á eg svo ekki að skila
þakklæti frá þér?"
,JÚ, innilegu þakklæti, því það var hann
sem kendi mér, að guðs ríki væri á himn-
um og að þar væri líka heimili mitt. Stund-
um hefi eg gleymt því, en það hefir þó alt
af geymst í hjarta mínu. Það er l(ka það
sem dregur mig inn 1 ríki guðs ( dag — (
dag. — 0, presturinn rninn!"
Hjúkrunarkonan tók um hendur hans með
hægð, lagði þær saman og sagði:
„l'aðir vor, þú, sem ert á himnum".
„Segið þér honum —"
„Eigum við ekki að biðja saman, góði
drengurinn minn?"
„Jú, en segið honum, að á meðal hinna
mðrgu, sem munu fagna honum hinumeginn,
verði einnig fátækur drengur, er hann eitt
aðfangadagskveld á fátækrahælinu í Kjöl-
strup, kendi að þekkja Jesúm Krist, sem
frelsara heimsins".
Hjúkrunarkonan lá á knjánum við rúm-
stokk drengsins og kyrkjuklukkurnar ( l'red-
rikstad fóru að hringja jólin í garð.
III.
„Louise!"
„Já, eg er hérna".
„Vilt þú ekki lesa þetta bréf fyrir mig.
Eg var að reyna það, en eg sé ekki rétt
vel í kveld".
„Það er leiðinlegt, á eg ekki að láta sækja
læknirinn? Gullbrúðkaupið er á morgun".
„Þetta er ekkert, góða mín, en eg þoli