Iðunn - 01.01.1884, Side 10

Iðunn - 01.01.1884, Side 10
4 Björnstjerne Björnson: stráknum. «|>að verðr að uppræta það», sagðihann við móðr hans; og þegar er þorbjörn var þrévetr, settist faðir hans oft niðr með vönd í hendinni og knúði svo drenginn til að bera á sinn stað aftr hverja spýtu, sem hann hafði dregið aflaga, taka upp boll- ann, sem hann hafði fleygt f gólfið og klappa kettin- um, sem hann hafði klipið. En þegar þetta kom að Sæmundi, fór húsfreyja venjulega fram. það þótti Sæmundi kynlegt, að því cldri scm drengrinn varð, því fleira var það í fari hans, er leiðrétta þurfti, og það þótt Sæmundr gjörðist hon- um æ strangari. Hann hélt honum snemma til bók- arinnar, og hafði hann með sér þegar hann var við útivinnu, svo hann gæti haft auga á honum. Hús- freyja hafði stórt heimili að annast og fullt hús barna; hún gat ekki meira að gjört en klappa þor- birni og áminna hann á hverjum morgni, þegar hún klæddi hann, og tala hljótt við föðr hans, þegar þau voru öll saman á helgidögum. En þegar þor- björn var bariun fyrir það, að a og b var ab, en ekki ba, eða fyrir það, að hann mátti ekki gefa Ingiríði litlu systur sinni ráðningu, eins og faðir hans gaf hon- um, þá hugsaði hann með sjálfuni sér: «J>að er þó merkilegt, að ég skuli eiga svona slæmt, og að öll litlu systkinin mín skuli eiga svo gott». þorbjörn var oftast með föður sínum, en við hann þorði hann fátt að tala, og varð hann því fá- máll, en hugsaði því fleira. Einu sinni er þeir voru að rifja vott hey.skrapp þóupp úr honum að segja: «Af hverju er allt heyið orðið þurt og komið í hús þarna yfir á Sunnuhvoli, og hér er það vott enn?» — «Af því að þeir hafa oftar sól þar en við hér». — Hann hafði oft haft ánægju af að horfa á sólskinið þar fyrir

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.