Iðunn - 01.01.1884, Side 40

Iðunn - 01.01.1884, Side 40
34 Björnstjerne Björnson: hvols-fólkið hafði keypt part í Grenihlíðarselinu. |>að mátti heyra 3önginn í |>orbirni efst uppi í hlíð- um, því að hann var að færa hitt og þetta í lag fyrir þær. Einn góðan veðrdag þegar kvelda tók og hann hafði lokið dagsverki sínu, settist hann niðr og var að hugsa um hitt og þetta, og það elcki sízt, hvað talað var í sveitinni; hann lagðist aftr á bak í mó- rauðu lynginu með hendrnar undir hnakkanum, og fór að horfa upp í himininn, sem hvelfdist blár og skínandi bak við ið þétta lim trjánna. það varfrá honum að sjá, eins og laufið grænt og barrið flyti á himninum í titrandi straumi, og greinarnar dökkvar, sem stungu af við hitt, drógu undarlega og óskipu- lega drætti á strauminn. En í himininn sjálfan sá að eins, þegar eitthvert blaðið blakti frá; en aftr fjær milli krónanna á trjánum, som ekki náðu sam- an, þar skein himininn í gegn, eins og breið elfr rynni þar yfir í undarlegum bugðum. þetta hafði áhrif á huga hans, og hann fór að hugsa um það, sem sem fyrir augun bar----------. ------Björkin leit aftr brosandi þúsund aug- um upp til granarinnar; furan stóð þar með þögulli fyrirlitningu og steytti broddana í allar áttir; því eftir því sem hlýrra varð í lofti, kviknuðu fleiri og fleiri veiklegir nýgræðingar, þutu upp og stungu spá- nýju laufinu beint upp í nefið á furunni. «Hvar vor- uð þið í vetr, veslingar?» spurði furan, veifaði að sór svala og sveittist kvoðunni í þessum óþolandi hita. «Nei, þetta er þó næstum fráleitt! — svona norðarlega— svei, svei!». En svo var þar ein gömul, grásköllótt fura, sem mændi upp yfir öll hin trén, og gat þó beygt marg-

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.